Nokkur innlegg um Albert Camus „Hið blíða skeytingarleysi heimsins“ föstudaginn 10. apríl 2026 kl. 15-17:30 í Veröld – hús Vigdísar

Málþing í Auðarsal í Veröld – húsi Vigdísar þann 10. apríl kl. 15:00-17:30 þar sem fjallað verður um ólíkar hliðar á verkum Camus og þau viðbrögð sem þau hafa vakið og vekja enn. Fáir franskir rithöfundar – lífs eða liðnir – eru jafn þekktir og Albert Camus. Skáldverk hans hafa verið gefin út ótal sinnum…

Sýning á Une vie privée eftir Rebecca Zlotowski, með Jodie Foster, sunnudaginn 29. mars 2026 kl. 16:30 í Bíó Paradís

Sýning bíómyndarinnar „Une vie privée“ eftir Rebecca Zlotowski með Jodie Foster. Að myndinni lokinni verður boðið upp á drykk Kvikmyndir Zlotowski eru sýndar í samstarfi við Stockfish Film Festival. Staðsetning og tímasetningar Kaupa miða 📅 Dagsetningar: sunnudagur 29. mars 2026 kl. 16:30 📍 Staðsetning: Bíó Paradís

Sýning bíómyndarinnar „Trois couleurs : Blanc“ eftir Krzysztof Kieślowski með Julie Delpy, sunnudaginn 21. mars 2026 kl. 19:30 í Bíó Paradís

Sýning bíómyndarinnar „Trois couleurs : Blanc“ eftir Krzysztof Kieślowski með Julie Delpy. Trois couleurs: Blanc segir frá Karol, pólskum hárskera sem stendur uppi ráðvilltur í París eftir að eiginkona hans yfirgefur hann. Myndin endurspeglar jafnaðarhugmyndina í frönsku byltingunni, en nálgast efnið í gegnum flókna valdaleiki hjónabandsins þar sem Karol reynir að endurheimta virðingu sína. Myndin varpar…

Sýning bíómyndarinnar „Trois couleurs : Bleu“ eftir Krzysztof Kieślowski með Juliette Binoche, sunnudaginn 21. mars 2026 kl. 17 í Bíó Paradís

Sýning bíómyndarinnar „Trois couleurs : Bleu“ eftir Krzysztof Kieślowski með Juliette Binoche Trois couleurs: Bleu fjallar um Julie, konu sem reynir að byggja líf sitt upp á nýtt eftir skyndilegt áfall. Í leit sinni að tilfinningalegu frelsi glímir hún við sorg, minningar og tengsl sem hún getur hvorki flúið né gleymt. Myndin táknar hugmyndina um…

AFLÝST – ÉVÉNEMENT ANNULÉ Ratleikur í nágrenni Alliance Française, laugardaginn 21. mars 2026 kl. 14 í Alliance Française

VIÐBURÐI AFLÝST – ÉVÉNEMENT ANNULÉ Ljósmyndaratleikur verður haldinn í nágrenni Alliance Française á slóðum frönsku tungunnar á Íslandi. Þátttakendur fá tækifæri til að heimsækja nokkra samstarfsaðila Alliance Française. Deginum lýkur kl. 16 með verðlaunaafhendingu og notalegri samverustund yfir kaffibolla. Staðsetning og tímasetningar 📅 Dagsetningar: laugardagur 21. mars 2026 kl. 14 📍 Staðsetning: Alliance Française

Fyrirlestur um Jean-Baptiste Charcot og strand skipsins Pourquoi Pas ? föstudaginn 20. mars 2026 kl. 18:30 í Alliance Française

Fyrirlestur um franska heimskautafarann Jean-Baptiste Charcot og strand rannsóknarskipsins Pourquoi Pas ? við Íslandsstrendur árið 1936. Fjallað verður um ævi og leiðangra Charcots, sem og atburðarásina í kringum strandið og þau spor sem hún skildi eftir sig í sögu Íslands og Frakklands. Fyrirlesari er Sigurður Egill Þorvaldsson. Viðburðurinn fer fram á íslensku og er opinn…

Spurningaleikur um Líbanon fimmtudaginn 19. mars 2026 kl. 18:30 í Alliance Française

Spurningaleikur um Líbanon Boðið verður upp á skemmtilegan og fróðlegan spurningaleik um Líbanon þar sem fjallað verður um þekkta einstaklinga, tónlist, menningu og matargerð landsins. Gestir fá einnig tækifæri til að smakka ljúffengan líbanskan mat og kynnast bragðheimi sem endurspeglar sögu og hefðir landsins. Viðburðurinn fer fram á ensku og er öllum opinn. Komið og…

„Arco“ – kvikmyndasýning og skapandi teiknismiðja innblásin af myndinni með Aron Daða Þórissyni sunnudaginn 8. mars 2026 kl. 14 í Bíó Paradís

2F1 tilboð!Bíó Paradís býður upp á tilboðið: „Tveir fyrir einn“ á sýninguna á ARCO núna á sunnudaginn kl.14:00. Hægt er að nálgast miðana beint í miðasölu Bíó Paradís með kóðanum RAINBOW til að nýta tilboðið. Alliance Française, í samstarfi við Bíó Paradís og Franska sendiráðið biður upp á listasmiðju með Aron Daða Þórissyni í tengslum við…

Listasýning „Eitraðar grundir“ eftir Bernard Khoury 7. febrúar – 23. ágúst 2026 á Listasafni Árnesinga

Eitraðar grundir Bernard Khoury Sýningarstjóri: Yara Zein Salur 1 7. febrúar – 23. ágúst 2026 Í meira en tvo áratugi hefur Bernard Khoury staðið á jaðri listarinnar, hafnað hefðum hennar, afhjúpað hræsni hennar og endurbyggt tungumál hennar. Verk hans snúast ekki um byggingar. Þau fjalla um það sem byggingar sýna þegar þær eru sviptar táknmálinu…