DELF: Vottorð um nám í franskri tungu (A1 til B2)
Hópur: Fullorðnir
DALF: Vottorð um ítarlegra nám í franskri tungu (C1 og C2)
Hópur : Fullorðnir í háskólanámi eða í starfi – allur almenningur

Til að skrá sig, smella á það stig sem óskað er eftir.

Sérúræði í DELF prófum. Kynntu þér málið hér.

A1 - Lágmarkskunnátta

Fyrstu kynni af tungumálinu, uppgötvun

Nemendur geti skilið og notað almennar og einfaldar setningar um daglegt lif til að geta bjargað sér í einföldum aðstæðum. Þeir geti kynnt sig, kynnt aðra og spurt spurninga til baka (t.d. að spyrja hvar einhver býr, um vini einhvers, um eigur fólks o.s.fv.). Nemendurnir geti líka svarað þessum spurningum. Þeir geti tekið þátt í einföldum samræðum ef hinn aðilinn er reiðubúinn að endurtaka eða umorða hluti hægt og hjálpa þeim að koma orðum að því sem þeir eru að reyna að segja.

DELF A1 – frá 2. til og með 6. desember 2024, kl. 10:00 – 12:00

Nákvæm dagsetning verður birt seinna.

Staðsetning: Alliance Française í Reykjavík, Tryggvagötu 8, 101 Reykjavík
Lengd : sirka 2 klst.
Eindagi til að skrá sig 27. nóvember 2024

Prófgjald
10.300 kr.
(6.500 kr. fyrir meðlimi AF)

A2 - Lágmarkskunnátta

Millistig og notkun tungumálsins

Nemendur geti skilið setningar og algeng orð sem tengjast þeim persónulega (t.d. persónulegar upplýsingar um sig og fjölskyldu sína, innkaup, nánasta umhverfi og atvinnu). Þeir geti tjáð sig um einföld og fastmótuð verkefni sem þarfnast einfaldra og beinna tjáskipta um efni sem þeir þekkja. Þeir geta myndað nokkrar setningar til þess að geta sagt frá umhverfi og menntun eða til þess að geta spurt og fengið það sem þeir þurfa.

DELF A2 – frá 2. til og með 6. desember 2024, kl. 10:00 – 12:30

Nákvæm dagsetning verður birt seinna.

Staðsetning: Alliance Française í Reykjavík, Tryggvagötu 8, 101 Reykjavík
Lengd : sirka 2,5 klst.
Eindagi til að skrá sig 27. nóvember 2024

Prófgjald
10.300 kr.
(6.500 kr. fyrir meðlimi AF)

B1 - Sjálfstæður notandi

Sjálfbjarga á tungumálinu

Nemendur geti skilið aðalatriði venjulegs talmáls um efni sem þeir þekkja og tengist vinnu þeirra, skóla, frístundum o.s.fv. Þeir geta tekist á við flestar aðstæður sem geta komið upp á ferðalagi um svæði þar sem málið er talað. Þeir geta óundirbúnir tekið þátt í samræðum um efni sem þeir þekkja, hafa áhuga á eða tengist daglegu lífi. Þeir geti sagt frá viðburði eða upplifun, lýst von eða markmið og líka gefið upplýsingar og útskýrt hvað þeir hafa fyrir stafni eða hugmyndir sínar.

DELF B1 – frá 2. til og með 6. desember 2024, kl. 10:00 – 12:45

Nákvæm dagsetning verður birt seinna.

Staðsetning: Alliance Française í Reykjavík, Tryggvagötu 8, 101 Reykjavík
Lengd : sirka 2 klst og 45 mín.
Eindagi til að skrá sig 27. nóvember 2024

Prófgjald
13.700 kr.
(8.700 kr. fyrir meðlimi AF)

B2 - Sjálfstæður notandi

Lengra kominn

Nemendur geti skilið langan málflutning og fyrirlestra, og get fylgst með frekar flóknum rökræðum ef efnið er þeirra kunnugt. þeir geti tekið þátt í samræðum af nokkru öryggi og án mikillar umhugsunar í reglulegum samskiptum við þá sem hafa málið að móðurmáli. Þeir geti útskýrt skoðanir sínar á málefnum sem eru ofarlega á baugi og lýst bæði kostum og göllum við mismunandi valkosti.

DELF B2 – frá 2. til og með 6. desember 2024, kl. 10:00 – 13:30

Nákvæm dagsetning verður birt seinna.

Staðsetning: Alliance Française í Reykjavík, Tryggvagötu 8, 101 Reykjavík
Lengd : sirka 3,5 klst.
Eindagi til að skrá sig 27. nóvember 2024

Prófgjald
13.700 kr.
(8.700 kr. fyrir meðlimi AF)

C1 - Fær notandi

Sjálfstæði á tungumálinu

Nemendur geti lesið langa og flókna texta og bókmenntaverk, og get greint stílbrigði. Þeir geti tjáð sig af öryggi og án mikillar umhugsunar eða orðaleitar. Þeir geti notað málið á sveigjanlegan og áhrifaríkan hátt bæði í félagslegum og faglegum tilgangi. Þeir geti gefið skýrar, nákvæmar lýsingar á flóknum málefnum í mörgum liðum, rætt ákveðin atriði og dregið saman í viðeigandi niðurstöður.

DALF C1 – frá 2. til og með 6. desember 2024, kl. 9:00 – 15:30

Nákvæm dagsetning verður birt seinna.

Staðsetning: Alliance Française í Reykjavík, Tryggvagötu 8, 101 Reykjavík
Lengd : sirka 5 klst.
Eindagi til að skrá sig 27. nóvember 2024

Prófgjald
20.500 kr.
(13.000 kr. fyrir meðlimi AF)

C2 - Fær notandi

Sérkunnátta

L’étudiant peut comprendre sans effort pratiquement tout ce qu’il/elle lit ou entend. Il peut restituer faits et arguments de diverses sources écrites et orales en les résumant de façon cohérente. Il peut s’exprimer spontanément, très couramment et de façon précise et peut rendre distinctes de fines nuances de sens en rapport avec des sujets complexes.

DALF C2 – frá 2. til og með 6. desember 2024, kl. 9:00 – 15:30

Nákvæm dagsetning verður birt seinna.

Staðsetning: Alliance Française í Reykjavík, Tryggvagötu 8, 101 Reykjavík
Lengd : sirka 5,5 klst.
Eindagi til að skrá sig 27. nóvember 2024

Prófgjald
20.500 kr.
(13.000 kr. fyrir meðlimi AF)