Almennt frönskunámskeið – Sjálfbjarga á tungumálinu 2
Námskeiðið B1.2 er í beinu framhaldi af B1.1 og gefur nemendum tækifæri á að rifja upp og að læra nýja þekkingu eins og að tala um vandamál og frumkvæði, að kynna vísindæfni og óvissuatriði, að tala um staðreyndir og segja sögur, að gagnrýna og sýna áhuga á einhverju o.s.fv.
Námskeiðið fer fram í tvo klukkutíma einu sinni í hverri viku (32 klst.)
Staðnám með fjarkennsku í beinni útsendingu
Býrð þú fyrir utan höfuðborgarsvæðið? Ertu oft á ferðalagi? Er óveður? Viltu frekar læra heima? Í dag skiptir sveigjanleiki í námi miklu máli. Við bjóðum nú upp á nýja lausn sem gefur nemendum kost á að taka þátt í frönskunámskeiði hvar sem þeir eru. Nemendur geta nú valið á milli tveggja valkosta fyrir hvern tíma í námskeiðinu: að læra á staðnum eða að vera í fjarkennslu í beinni. Frekari upplýsingar hér.
Kennsluefni
-
- Kennslubók: L’Atelier B1 lesbók og æfingabók (kaflar 4, 5 og 6)
- Bækurnar eru ekki innifaldar.
- L’Atelier B1 er notuð fyrir allar fjórar annirnar sem tekur að klára B1.
- Hægt er að kaupa þær hjá okkur (lesbók: 4.799 kr. / æfingabók: 2.799 kr.)
- Hægt er að fá bækurnar með bréfpósti með aukagjaldi (vinsamlegast hafðu samband ef þú vilt fá þær sendar)
- Skriffæri (staðnám)
- Tölva, gott netsamband, heyrnatól með innbyggðan hljóðnema er kostur (fjarkennsla í beinni)
- Kennslubók: L’Atelier B1 lesbók og æfingabók (kaflar 4, 5 og 6)
Frestun og viðurkenning
- Verði tímum frestað vegna veikinda kennara eða öðrum ástæðum verður það bætt upp í lok annarinnar.
- Nemendurnir fá viðurkenningu í lok annarinnar ef þeir hafa mætt að minnsta kosti 70% á námskeiðið.
NÝTT
Misstir þú úr kennslutíma? Við bjóðum þér upp á að fara yfir kennsluefnið sem þú misstir af með leiðbeinanda á laugardögum frá kl. 10 til kl. 12 á staðnum eða á netinu. Ókeypis. Skráning nauðsynleg.
Styrkir til náms og greiðslur
-
- Mundu að athuga með námsskeiðsstyrki hjá stéttarfélaginu þínu eða hjá Vinnumálastofnun.
- Hægt er að skipta greiðslunni í tvennt og greiða í heimabanka.