Námskeiðið 2 í Cycle 4 hefur það markmið að bæta kunnáttu Cycle 3. Nemendurnir byrja hér að greina bókmenntatexta og uppgötva landafræði og sagnfræði til þess að dýpka kunnáttuna í frönsku. Það stig er til að dýpka frönskukunnáttu.
Nemendur læra að nota frönsku sem skrifmál við ólíkar aðstæður og í fjölbreyttum tilgangi. Þeir bæta þekkingu sína í að skrifa vandaða texta á frönsku. Þverfaglega kennslan (bókmenntir, landafræði og sagnfræði) hefur það markmið að dýpka enn frekar frönskugetu nemenda.
Á þessu námskeiði er boðið upp á að lesa og greina sígildar bókmenntir. Á námskeiðinu er einnig lítillega farið í sagnfræði og landafræði.
Að loknu námskeiðinu stendur nemendum til boða að taka DELF B1 eða B2 prófin.
Ein og hálf klukkustund í hverri viku.
Það þarf að minnsta kosti fjóra nemendur til að opna námskeiðið. Hámark: 6 nemendur.
Frestun og forföll
- Verði tímum frestað vegna veikinda kennara eða öðrum ástæðum verður það bætt upp í lok annanna.
Styrkir
Munið að athuga með námsskeiðsstyrki hjá Reykjavíkurborg og Kópavogi.