Almennt frönskunámskeið fyrir byrjendur – Millistig og notkun tungumálsins 1
Námskeiðið A2.1 er í beinu framhaldi af A1 og gefur nemendunum tækifærið á að læra hvernig á að fagna einhverju, að skipuleggja viðburð, að segja gamansögu o.s.fv.
Námskeiðið fer fram í tvo klukkutíma tvisvar í hverri viku.
8 vikur af námskeiðum (32 klst.)
Staðnám með fjarkennsku í beinni útsendingu
Býrð þú fyrir utan höfuðborgarsvæðið? Ertu oft á ferðalagi? Er óveður? Viltu frekar læra heima? Í dag skiptir sveigjanleiki í námi miklu máli. Við bjóðum nú upp á nýja lausn sem gefur nemendum kost á að taka þátt í frönskunámskeiði hvar sem þeir eru. Nemendur geta nú valið á milli tveggja valkosta fyrir hvern tíma í námskeiðinu: að læra á staðnum eða að vera í fjarkennslu í beinni. Frekari upplýsingar hér.
Kennsluefni
-
- Kennslubók: L’Atelier A2 lesbók og æfingabók (kaflar 0, 1 og 2)
- Bækurnar eru ekki innifaldar.
- L’Atelier A2 er notuð fyrir allar þrjár annirnar sem tekur að klára A2.
- Hægt er að kaupa þær hjá okkur (lesbók: 4.499 kr. / æfingabók: 2.799 kr.)
- Hægt er að fá bækurnar með bréfpósti með aukagjaldi (vinsamlegast hafðu samband ef þú vilt fá þær sendar)
- Skriffæri (staðnám)
- Tölva, gott netsamband, heyrnatól með innbyggðan hljóðnema er kostur (fjarkennsla í beinni)
- Kennslubók: L’Atelier A2 lesbók og æfingabók (kaflar 0, 1 og 2)
Frestun og viðurkenning
- Verði tímum frestað vegna veikinda kennara eða öðrum ástæðum verður það bætt upp í lok annarinnar.
- Nemendurnir fá viðurkenningu í lok annarinnar ef þeir hafa mætt að minnsta kosti 70% á námskeiðið.
Styrkir til náms og greiðslur
-
- Mundu að athuga með námsskeiðsstyrki hjá stéttarfélaginu þínu eða hjá Vinnumálastofnun.
- Hægt er að skipta greiðslunni í tvennt og greiða í heimabanka.