NÚ ER OPIÐ fyrir skráningar í stuttmyndakeppni Sólveigar Anspach 2018
Lokað verður fyrir skráningar þann 31. október 2017
Skilyrði fyrir þátttöku:
- Að kona sé leikstjóri stuttmyndarinnar og hún hafi ekki haft framleiðslufyrirtæki á bak við sig í fleiri en þremur myndum.
- Þjóðerni leikstjóra: Þátttakandi sé með ríkisfang eða búsetu í frönskumælandi landi, eða sé íslensk eða búsett á Íslandi.
- Tegund /þema: Öll þemu leyfð.
- Myndin sé að hámarki 17 mínútna löng, að meðtöldum kreditlistum.
- Að lokið hafi verið við stuttmyndina eftir 1. janúar 2016.
- Að myndin sé á frönsku eða íslensku. Það er skilyrði að hún sé með enskum texta.
Umsóknir hér
Reglur um stuttmyndakeppnina eru hér.
Stuttmyndirnar, sem dómnefnd velur, verða sýndar í Háskólabíói sem hluti af Frönsku kvikmyndahátíðinni.
Netfang: sashortfilms@af.is