Í tilefni af hátíðinni « Keimur », bjóða sendiráð Frakklands á Íslandi og Alliance Française í Reykjavík upp á pikknikk með réttum úr franskri heimilismatseld í samstarfi við Hagkaup. Viðburðurinn verður laugardaginn 24. nóvember 2018 frá kl. 11 til kl. 14 í Alliance Française í Reykjavík. Þátttakendur láta gesti Alliance Française í Reykjavík smakka uppáhalds réttina sína. Markmiðið er það að uppgötva uppskriftir úr franskri heimilismatseld sem tíu þátttakendur búa til og láta gesti smakka: aðalréttir (bökur, tertur, gratín, o.s.frv.) eða eftirréttir (tertur, kökur, o.s.frv.). Þátttakendur velja sína eigin uppskrift. Þessir tíu þátttakendur fá 5.000 kr. inneign í Hagkaup til þess að geta keypt hráefni uppskriftanna. Pikknikkið er opið fyrir alla og er ókeypis. Sendiráð Frakklands á Íslandi og Alliance Française í Reykjavík bjóða upp á drykki. Eftir pikknikkið verður spurningakeppni á frönsku um franska matgerðarlist. Vinningar í boði. Hvernig á að taka þátt?