Þetta frönskunámskeið fyrir sjálfstæða notendur er ætlað unglingum frá 11 til 15 ára aldurs. Stig námskeiðsins er B1.
Nemendur rifja upp lágmarkskunnáttu á frönsku og læra nýja þekkingu eins og að tala um frístundir sínar, að tala um verkefni í framtíðinni, að samþykkja, að taka sárt og að taka afstöðu. Nemendur eru hvattir að tjá sig á frönsku í námskeiðinu samkvæmt ýmsum þemum: daglegt líf, sögur, tónlist og leikir.
Þetta námskeið býður nemendum upp á mörg þroskandi og skemmtileg verkefni sem efla námið í frönsku með því að skrifa, að lesa, að tala og að skilja talmál.
-
- Lesbók og vinnubók: À la une 4, Maison des langues (að kaupa aukalega í september)
- Lengd tímana: 90 mín í hverri viku (32 vikur á skólaárinu 2021-2022).
- Það þarf að minnsta kosti fjóra nemendur til að opna námskeiðið. Hámark: 8 nemendur.
- Verði tímum frestað vegna veikinda kennara eða öðrum ástæðum verður það bætt upp í lok annanna.
Styrkir
Munið að athuga með námsskeiðsstyrki hjá Reykjavíkurborg og Kópavogi. Hægt er líka að fá staðfestingu fyrir greiðslu til að sækja um styrk.