Þetta frönskunámskeið fyrir byrjendur með grunn er ætlað börnum frá 11 til 15 ára aldurs. Stig námskeiðsins er A1/A2.
Nemendur læra hvernig á að tala um smekk sinn og skoðanir, að gefa jákvætt eða neikvætt álit, að tala um minningar, að spyrja um nánari upplýsingar og að skilja gefnar upplýsingar o.s.fv. Nemendur eru hvattir að tjá sig á frönsku í námskeiðinu samkvæmt ýmsum þemum: daglegt líf, sögur, tónlist og leikir.
Þetta námskeið býður nemendum upp á mörg þroskandi og skemmtileg verkefni sem efla námið í frönsku með því að skrifa, að lesa, að tala og að skilja talmál.
-
- Lesbók og vinnubók: À la une 2, Maison des langues (að kaupa aukalega í september)
- Lengd tímana: 90 mín í hverri viku (32 vikur á skólaárinu 2021-2022).
- Það þarf að minnsta kosti fjóra nemendur til að opna námskeiðið. Hámark: 8 nemendur.
- Verði tímum frestað vegna veikinda kennara eða öðrum ástæðum verður það bætt upp í lok annanna.
Styrkir
Munið að athuga með námsskeiðsstyrki hjá Reykjavíkurborg og Kópavogi. Hægt er líka að fá staðfestingu fyrir greiðslu til að sækja um styrk.