Þetta frönskunámskeið fyrir byrjendur er ætlað börnum frá 6 til 8 ára aldurs. Þau eru byrjuð í grunnskóla á Íslandi (þau eru byrjuð að læra að lesa og að skrifa á íslensku í skólanum á Íslandi). Þetta námskeið er fyrir algjöra byrjendur í frönsku (A1.1).
Nemendur læra að skilja og nota auðveldar setningar og orðaforða um daglegt líf. Nemendurnir eru hvattir að tjá sig á frönsku í námskeiðinu samkvæmt ýmsum þemum: daglegt líf, sögur, tónlist og leikir. Þetta námskeið býður nemendum upp á mörg þroskandi og skemmtileg verkefni sem efla námið í frönsku með því að skrifa, að lesa, að tala og að skilja talmál.
Að loknu námskeiðinu stendur börnum til boða að taka DELF Prim A1.1 prófið (valfrjálst).
-
- Lesbók og vinnubók: Passe passe 1 (að kaupa aukalega í september)
- Lengd tímana: 75 mín í hverri viku (32 vikur á skólaárinu 2024-2025).
- Það þarf að minnsta kosti fjóra nemendur til að opna námskeiðið. Hámark: 8 nemendur.
- Verði tímum frestað vegna veikinda kennara eða öðrum ástæðum verður það bætt upp í lok annanna.
Styrkir
Munið að athuga með námsskeiðsstyrkum.
Hægt er líka að fá staðfestingu fyrir greiðslu til að sækja um styrk.