Franskar bókmenntir

Bókmenntanámskeiðið er fyrir þá sem vilja bæta við kunnáttu sína í frönsku með því að lesa og greina verk bókmennta eða heimilda.

Markmið bókmenntanámskeiðsins er að lesa og greina bókmenntatexta. Nemandinn geti nýtt málvísindi og tungumálið (málfræði, orðaforði o.s.frv.) og greint merkingu textans. Þar er líka tækifæri til að tala um menningu og samfélag Frakklands. Námskeiðið verður aðallega haldið í talmáli.

Námskeiðið fer fram í tvo klukkutíma einu sinni í hverri viku.

8 vikur af námskeiðum (16 klst.)

Bókin

Le texte étudié est Le salaire de la peur de Georges Arnaud.

Ils ont été pris au piège de ce port sordide du littoral sud-américain, dans un décor de fin du monde.
Pour ces vagabonds des tropiques, aventuriers faméliques, criminels, il ne reste plus qu’à mourir sur place ou récolter quelques dollars pour fuir cet enfer.

Quitte à y laisser leur peau, un Français et trois autres desperados acceptent une mission suicide : convoyer, sur des pistes impraticables, un camion hors d’usage chargé de nitroglycérine.

Un camion qui prend des allures de destin. Commence alors une épopée de l’angoisse pure et de l’absurde…

Kennsluefni

  • Bókin
    • Bókin er til sölu og kostar 2.000 kr.
    • Hægt er að fá bókina send með bréfpósti með aukagjaldi (vinsamlegast hafðu samband ef þú vilt fá þær sendar)
  • Skriffæri (staðnám)
  • Tölva, gott netsamband, heyrnatól með innbyggðan hljóðnema er kostur. (fjarkennsla)

Staðnám með fjarkennsku í beinni útsendingu

Býrð þú fyrir utan höfuðborgarsvæðið? Ertu oft á ferðalagi? Ertu í sóttkví? Er óveður? Viltu frekar læra heima?
Í dag skiptir sveigjanleiki í námi miklu máli. Við bjóðum nú upp á nýja lausn sem gefur nemendum kost á að taka þátt í frönskunámskeiði hvar sem þeir eru. Nemendur geta nú valið á milli tveggja valkosta fyrir hvern tíma í námskeiðinu: að læra á staðnum eða að vera í fjarkennslu í beinni. Frekari upplýsingar hér.

Frestun og viðurkenning

  • Verði tímum frestað vegna veikinda kennara eða öðrum ástæðum verður það bætt upp í lok annarinnar.
  • Nemendurnir fá viðurkenningu í lok annarinnar ef þeir hafa mætt að minnsta kosti 70% á námskeiðið.

Styrkir til náms og greiðslur

    • Mundu að athuga með námsskeiðsstyrki hjá stéttarfélaginu þínu eða hjá Vinnumálastofnun.
    • Hægt er að skipta greiðslunni í tvennt og greiða í heimabanka.

Dagatal

212_4.2_skoladagatal-2022-2023_grunnur
  • DAGSETNING: frá 6. september til 25. október 2022 – 8 vikur (16 klst.)
  • TÍMASETNING: þriðjudaga kl. 18:15-20:15
  • ALMENNT VERÐ: 34.400 kr. (31.400 kr. fyrir 21. ágúst 2022)
  • VERÐ MEÐ AFSLÆTTI*: 31.400 kr. (28.400 kr. fyrir 21. ágúst 2022)
    *
    skráningarskilmálar hér.
essai1

Af hverju franska?

Vídeó, Röksemd
Cq9J1WfVUAAglhb

Stöðupróf

Hvernig á að skrá sig?
ONU6RW0

Gerast félagi

Bókasafn, Culturethèque
Education-OpportunitySmall

Próf

DELF-DALF, TCF
conditions-generales-vente-prestations-services-1024x341

Skilmálar

Almennir skilmálar