Almennt frönskunámskeið fyrir lengra komna 1
Námskeiðið B2.1 er í beinu framhaldi af B1 og gefur nemendum tækifæri á að rifja upp og að læra nýja þekkingu eins og að tjá sig um tilfynningar að semja og ræða saman að viðurkenna og staðfesta að safna upplýsingum og gefa upplsýsingar til baka o.s.fv.
Þetta námskeið hentar þeim sem hafa lokið B1 eða þeim sem hafa þegar góða kunnáttu í frönsku.
- Almennt námskeið sem fer fram í tvo klukkutíma tvisvar í hverri viku (32 klst.)
Staðnám með fjarkennsku í beinni útsendingu
Býrð þú fyrir utan höfuðborgarsvæðið? Ertu oft á ferðalagi? Ertu í sóttkví? Er óveður? Viltu frekar læra heima?
Í dag skiptir sveigjanleiki í námi miklu máli. Við bjóðum nú upp á nýja lausn sem gefur nemendum kost á að taka þátt í frönskunámskeiði hvar sem þeir eru. Nemendur geta nú valið á milli tveggja valkosta fyrir hvern tíma í námskeiðinu: að læra á staðnum eða að vera í fjarkennslu í beinni.
Kennsluefni
- Kennslubók: L’Atelier B2 lesbók og æfingabók (kaflar 1, 2 og 3)
- Bækurnar eru ekki innifaldar.
- L’Atelier B2 er notuð fyrir allar fjórar annirnar sem tekur að klára B2.
- Hægt er að kaupa þær hjá okkur (lesbók: 4.800 kr. / æfingabók: 2.800 kr.)
- Hægt er að fá bækurnar með bréfpósti með aukagjaldi (vinsamlegast hafðu samband ef þú vilt fá þær sendar)
- Skriffæri (staðnám)
- Tölva, gott netsamband, heyrnatól með innbyggðan hljóðnema er kostur (fjarkennsla í beinni)
Frestun og viðurkenning
- Verði tímum frestað vegna veikinda kennara eða öðrum ástæðum verður það bætt upp í lok annarinnar.
- Nemendurnir fá viðurkenningu í lok annarinnar ef þeir hafa mætt að minnsta kosti 70% á námskeiðið.
NÝTT
Misstir þú úr kennslutíma? Við bjóðum þér upp á að fara yfir kennsluefnið sem þú misstir af með leiðbeinanda á laugardögum frá kl. 10 til kl. 12 á staðnum eða á netinu. Ókeypis. Skráning nauðsynleg.
Styrkir til náms og greiðslur
-
- Mundu að athuga með námsskeiðsstyrki hjá stéttarfélaginu þínu eða hjá Vinnumálastofnun.
- Hægt er að skipta greiðslunni í tvennt og greiða í heimabanka.