Almennt frönskunámskeið fyrir byrjendur – Byrjunarstig 3

​Þetta námskeið hentar þeim sem hafa tekið námskeiðið A1.2 eða þeim sem hafa pínu litla kunnáttu í frönsku. Maður lærir að fara í atvinnuviðtal, að leggja mat á húsnæði, að láta í ljós skoðun sína, að vera sammála eða ósammála einhverjum. Á þessu námskeiði byrjar maður að móta þínar eigin setningar og þátíð.

Námskeiðið fer fram í tvo klukkutíma tvisvar í hverri viku (32 klst.)

Staðnám með fjarkennsku í beinni útsendingu

Býrð þú fyrir utan höfuðborgarsvæðið? Ertu oft á ferðalagi? Er óveður? Viltu frekar læra heima? Í dag skiptir sveigjanleiki í námi miklu máli. Við bjóðum nú upp á nýja lausn sem gefur nemendum kost á að taka þátt í frönskunámskeiði hvar sem þeir eru. Nemendur geta nú valið á milli tveggja valkosta fyrir hvern tíma í námskeiðinu: að læra á staðnum eða að vera í fjarkennslu í beinni. Frekari upplýsingar hér.

Kennsluefni

    • Kennslubók: L’Atelier A1 lesbók og æfingabók (kaflar 6, 7 og 8)
      • Bækurnar eru ekki innifaldar.
      • L’Atelier A1 er notuð fyrir allar þrjár annirnar sem tekur að klára A1.
      • Hægt er að kaupa þær hjá okkur (lesbók: 4.499 kr. / æfingabók: 2.799 kr.)
      • Hægt er að fá bækurnar með bréfpósti með aukagjaldi (vinsamlegast hafðu samband ef þú vilt fá þær sendar)
    • Skriffæri (staðnám)
    • Tölva, gott netsamband, heyrnatól með innbyggðan hljóðnema er kostur (fjarkennsla í beinni)

Frestun og viðurkenning

  • Verði tímum frestað vegna veikinda kennara eða öðrum ástæðum verður það bætt upp í lok annarinnar.
  • Nemendurnir fá viðurkenningu í lok annarinnar ef þeir hafa mætt að minnsta kosti 70% á námskeiðið.

NÝTT

Misstir þú úr kennslutíma? Við bjóðum þér upp á að fara yfir kennsluefnið sem þú misstir af með leiðbeinanda á laugardögum frá kl. 10 til kl. 12 á staðnum eða á netinu. Ókeypis. Skráning nauðsynleg.

Styrkir til náms og greiðslur

    • Mundu að athuga með námsskeiðsstyrki hjá stéttarfélaginu þínu eða hjá Vinnumálastofnun.
    • Hægt er að skipta greiðslunni í tvennt og greiða í heimabanka.

Dagatal

thumbnail_2023-2024_adultes
  • DAGSETNING: frá 23. janúar til og með 14. mars 2024 (32 klst.)
    tímar til að vinna upp frá 18. til og með 22. mars 2024.
  • TÍMASETNING: þriðjudaga og fimmtudaga kl. 18:15-20:15
  • ALMENNT VERÐ: 77.600 kr. (74.600 kr. fyrir 7. janúar 2024)
  • VERÐ MEÐ AFSLÆTTI*: 74.600 kr. (71.600 kr. fyrir 7. janúar 2024)
    *
    skráningarskilmálar hér.
essai1

Af hverju franska?

Vídeó, Röksemd
Cq9J1WfVUAAglhb

Stöðupróf

Hvernig á að skrá sig?
ONU6RW0

Gerast félagi

Bókasafn, Culturethèque
Education-OpportunitySmall

Próf

DELF-DALF, TCF
conditions-generales-vente-prestations-services-1024x341

Skilmálar

Almennir skilmálar