Almennt frönskunámskeið fyrir byrjendur – Byrjunarstig 2

Í námskeiðinu A1.2 – Daglegt líf og samskipti við aðra læra nemendur að tala um daglegt líf sitt, venjur, heimili og frítíma. Þeir geta lýst dæmigerðum degi, sagt frá lífsstíl sínum, kynnt heimili sitt og tjáð skoðanir og óskir. Nemendur læra einnig að gera tillögur, samþykkja eða hafna boðum og lýsa bæði persónuleika og útliti fólks. Áhersla er lögð á að efla sjálfstæði í samskiptum og styrkja færni til að takast á við algengar aðstæður í daglegu lífi.

Taktu stöðupróf: http://stoduprof.af.is

Námskeiðið fer fram í tvo klukkutíma tvisvar í hverri viku.

(32 klst.)

Staðnám með fjarkennsku í beinni útsendingu

Býrð þú fyrir utan höfuðborgarsvæðið? Ertu oft á ferðalagi? Er óveður? Viltu frekar læra heima? Í dag skiptir sveigjanleiki í námi miklu máli. Við bjóðum nú upp á nýja lausn sem gefur nemendum kost á að taka þátt í frönskunámskeiði hvar sem þeir eru. Nemendur geta nú valið á milli tveggja valkosta fyrir hvern tíma í námskeiðinu: að læra á staðnum eða að vera í fjarkennslu í beinni. Frekari upplýsingar hér.

Kennsluefni

    • Kennslubók: Défi Actuel 1 lesbók og æfingabók (kaflar 4, 5 og 6)
      • Bækurnar eru ekki innifaldar.
      • Défi Actuel 1 er notuð fyrir allar þrjár annirnar sem tekur að klára A1.
      • Hægt er að kaupa þær hjá okkur (lesbók: 4.500 kr. / æfingabók: 3.000 kr.)
      • Hægt er að fá bækurnar með bréfpósti með aukagjaldi (vinsamlegast hafðu samband ef þú vilt fá þær sendar)
    • Skriffæri (staðnám)
    • Tölva, gott netsamband, heyrnatól með innbyggðan hljóðnema er kostur (fjarkennsla í beinni)

Frestun og viðurkenning

  • Verði tímum frestað vegna veikinda kennara eða öðrum ástæðum verður það bætt upp í lok annarinnar.
  • Nemendurnir fá viðurkenningu í lok annarinnar ef þeir hafa mætt að minnsta kosti 70% á námskeiðið.

Styrkir til náms og greiðslur

  • Mundu að athuga með námsskeiðsstyrki hjá stéttarfélaginu þínu eða hjá Vinnumálastofnun.
  • Hægt er að skipta greiðslunni í tvennt eða í þrennt á Abler.

Dagatal

dagatal_fullordin_2026-2027
  • DAGSETNING: frá 24. ágúst til og með 14 október 2026
    tímar til að vinna upp 19. til og með 21. október 2026
  • TÍMASETNING: mánudaga og miðvikudaga kl. 18:15-20:15
  • ALMENNT VERÐ: 97.600 kr. (92.720 kr. fyrir 15 août 2026 með afsláttakóðanum: „EARLYBIRD“)
  • VERÐ MEÐ AFSLÆTTI*: 87.840 kr (afsláttakóði: „SPECIAL“)
    Þú verður beðin(n) um að framvísa skilríkjum (nemendaskírteini / eftirlaunaskírteini) í fyrsta tímanum.
    *
    skráningarskilmálar hér.

Það er alveg mögulegt að greiða með millifærslu án gjalds. Í því tilviki vinsamlega sendið okkur tölvupóst (alliance@af.is) til að láta okkur vita.

essai1

Af hverju franska?

Vídeó, Röksemd
Cq9J1WfVUAAglhb

Stöðupróf

Hvernig á að skrá sig?
ONU6RW0

Gerast félagi

Bókasafn, Culturethèque
Education-OpportunitySmall

Próf

DELF-DALF, TCF
conditions-generales-vente-prestations-services-1024x341

Skilmálar

Almennir skilmálar