Almennt frönskunámskeið fyrir byrjendur – Byrjunarstig 1

Nemendur í A1.1 læra undirstöðuþætti í frönsku: að kynna sig og aðra, að biðja um upplýsingar og veita upplýsingar, að tala um áhugamál sín o.s.fv. Þetta námskeið er fyrir þá sem hafa aldrei lært frönsku áður.

Námskeiðið fer fram í tvo klukkutíma tvisvar í hverri viku.

(32 klst.)

Staðnám með fjarkennsku í beinni útsendingu

Býrð þú fyrir utan höfuðborgarsvæðið? Ertu oft á ferðalagi? Er óveður? Viltu frekar læra heima? Í dag skiptir sveigjanleiki í námi miklu máli. Við bjóðum nú upp á nýja lausn sem gefur nemendum kost á að taka þátt í frönskunámskeiði hvar sem þeir eru. Nemendur geta nú valið á milli tveggja valkosta fyrir hvern tíma í námskeiðinu: að læra á staðnum eða að vera í fjarkennslu í beinni. Frekari upplýsingar hér.

Kennsluefni

    • Kennslubók: L’Atelier A1 lesbók og æfingabók (kaflar 0, 1 og 2)
      • Bækurnar eru ekki innifaldar.
      • L’Atelier A1 er notuð fyrir allar þrjár annirnar sem tekur að klára A1.
      • Hægt er að kaupa þær hjá okkur (lesbók: 4.500 kr. / æfingabók: 3.000 kr.)
      • Hægt er að fá bækurnar með bréfpósti með aukagjaldi (vinsamlegast hafðu samband ef þú vilt fá þær sendar)
    • Skriffæri (staðnám)
    • Tölva, gott netsamband, heyrnatól með innbyggðan hljóðnema er kostur (fjarkennsla í beinni)

Frestun og viðurkenning

  • Verði tímum frestað vegna veikinda kennara eða öðrum ástæðum verður það bætt upp í lok annarinnar.
  • Nemendurnir fá viðurkenningu í lok annarinnar ef þeir hafa mætt að minnsta kosti 70% á námskeiðið.

Styrkir til náms og greiðslur

    • Mundu að athuga með námsskeiðsstyrki hjá stéttarfélaginu þínu eða hjá Vinnumálastofnun.
    • Hægt er að skipta greiðslunni í tvennt eða í þrennt á Abler.

Dagatal

2025_2026_adultes
  • DAGSETNING: frá 1. september til og með 23 október 2025
    tímar til að vinna upp frá 27. til og með 31. október 2025
  • TÍMASETNING: mánudaga og miðvikudaga kl. 10-12
  • ALMENNT VERÐ: 84.480 kr. (80.256 kr. fyrir 26 ágúst 2025 með afsláttakóðanum: „EARLYBIRD“)
  • VERÐ MEÐ AFSLÆTTI*: 76.032 kr (afsláttakóði: „SPECIAL“)
    Þú verður beðin(n) um að framvísa skilríkjum (nemendaskírteini / eftirlaunaskírteini) í fyrsta tímanum.

    *skráningarskilmálar hér.

essai1

Af hverju franska?

Vídeó, Röksemd
Cq9J1WfVUAAglhb

Stöðupróf

Hvernig á að skrá sig?
ONU6RW0

Gerast félagi

Bókasafn, Culturethèque
Education-OpportunitySmall

Próf

DELF-DALF, TCF
conditions-generales-vente-prestations-services-1024x341

Skilmálar

Almennir skilmálar