Láttu börnin þín uppgötva heim næturinnar!
Skammdegið er farið að klárast. Af þessu tilefni fá börnin á aldrinum 5 til 11 ára tækifæri til að uppgötva heim næturinnar og myrkursins á frönsku í tvo morgna með Margot. Á dagskrá: verkefni í kringum skynfærin fjögur þegar sjón er takmörkuð, hugleiðing um ótta og leiðir til að temja hann og sköpun ímyndaðra vera!
- Mánudagur 19. febrúar: ímyndaðar næturverur
- Þriðjudagur 20. febrúar: skynfærin í myrkrinu
Markmið
-
- að uppgötva orðaforða næturinnar og skynfæra
- að nota frönsku til að þróa sköpunargáfu
- að vinna saman í hópi
Dagsetningar og tímasetningar
-
- Mánudagur 19. febrúar, kl. 9-12
- Þriðjudagur 20. febrúar, kl. 9-12
Hægt er að láta börnin koma með nesti, borða á staðnum og horfa á teiknimynd kl. 13-14:30 (valkvætt og frítt).
Upplýsingar
-
- Aldur: 5 til 11 ára
- Lágmark og hámark þátttakenda : 4 til 8 þátttakendur
- Smá hressing verður í boði en börnin þurfa að koma með hádegisnesti ef þau horfa á teiknimyndina kl. 13:30.
- Börnin þurfa á vera á A2 stigi í frönsku til að geta fylgst með vel í tímunum