Í tilefni af hátíð franskrar tungu 2022 bjóða Alliance Française upp á vinnustofuna „föndraðu kind fyrir mig“ í samstarfi við sendiráð Frakklands á Íslandi.
Hver hefur aldrei lesið setninguna „Teiknaðu kind fyrir mig” í bókinni “Litli prinsinn“? Sýningin „Litli prinsinn: saga um vináttu“ í Alliance Française stendur til 26. mars. Af þessu tilefni býður Séverine Pech börnum á aldrinum 6 til 9 ára að föndra kind úr íslenskri ull.
Upplýsingar
-
- Vinnustofan er ætluð börnum á aldrinum 6 til 9 ára.
- Það þarf að minnsta kosti fjóra þátttakendur til að opna vinnustofuna. Hámark: 8 þátttakendur.
Leiðbeinandi
Séverine Pech