Þessi sumarfrístund er ætluð börnum sem vilja uppgötva japanska list: skrautritun og kanji, ævintýri, þjóðsögur og mangas, origami, koinobori, o.s.frv. Þessi frístund hefur það markmið að efla listsköpunargáfu barna í gegnum verkefni og myndlist.
Frístundin verður á frönsku.
Markmið
- að kynnast japanskri menningu
- að uppgötva ólíka menningarheima
- að læra nýjar aðferðir við skapandi list
- að þroska hugarheim sinn og eigin sköpunargáfu
- að efla frönskukunnáttu sína
Kennari: Romane Garcin
Kennsluefni innifalið.
Vinnustofan verður haldin innandyra og utandyra ef veður leyfir.
- Frá 6 ára.
- Það þarf að minnsta kosti fjóra nemendur til að opna námskeiðið.
- Stig A2 í frönsku nauðsynlegt