Þetta frönskunámskeið er ætlað börnum frá 6 til 9 ára aldurs sem hafa tekið námskeið 1 (A1.1). Þau hafa þegar grunn í frönsku (hafið samband við okkur til að fá frönskukunnáttu barns metið og til að fá ráðgjöf). Þetta stig er fyrir byrjendur í frönsku (A1.2).
Nemendurnir halda áfram að læra frönsku eftir A1.1. Þeir byrja að uppgötva frönsku sem skrifmál á meðan þeir bæta frönsku sína í talmáli og læra meiri orðaforða. Þeir byrja líka að geta talað á frönsku um sig sjálf, fjölskyldu þeirra, vini þeirra og um daglegt líf.
Þetta námskeið býður nemendunum upp á mörg þroskandi og skemmtileg verkefni sem efla námið í frönsku með því að skrifa, að lesa, að tala og að skilja talmál.
Að loknu námskeiðinu stendur börnum til boða að taka DELF Prim A1 prófið.
Ein klukkustund í hverri viku (31 vikur).
Það þarf að minnsta kosti fjóra nemendur til að opna námskeiðið. Hámark: 6 nemendur.
Frestun og forföll
- Verði tímum frestað vegna veikinda kennara eða öðrum ástæðum verður það bætt upp í lok annanna.
Styrkir
Munið að athuga með námsskeiðsstyrki hjá Reykjavíkurborg og Kópavogi.