Námskeið 4 er ætlað börnum frá 12 til 16 ára aldurs sem hafa tekið námskeið 2 (A1) og sem eru ekki byrjendur lengur (hafið samband við okkur til að fá frönskukunnáttu barns metið og til að fá ráðgjöf). Þetta er millistig í frönsku (A2).
Nemendur efla kunnáttu sína í frönsku sem skrifmál með því að skrifa auðveldar setningar (að skrifa póstkort, bréf til vina, skilaboð) um daglegt líf og um persónulega reynslu sína. Þeir læra að tala um tilfinningar, drauma þeirra, að spyrja og að gefa ráð á frönsku.
Þetta námskeið býður nemendunum upp á mörg verkefni sem efla námið í frönsku með því að skrifa, að lesa, að tala og að skilja talmál.
Kennslubók: Adosphère 2 (Hachette) seinni hluti eða Adosphère 3 (Hachette) fyrri hluti.
Að loknu námskeiðinu stendur börnum til boða að taka DELF Junior A2 prófið.
Ein klukkustund í hverri viku.
Það þarf að minnsta kosti fjóra nemendur til að opna námskeiðið. Hámark: 6 nemendur.
Frestun og forföll
- Verði tímum frestað vegna veikinda kennara eða öðrum ástæðum verður það bætt upp í vikunni sem byrjar 3. desember 2018.
Styrkir
Munið að athuga með námsskeiðsstyrki hjá Reykjavíkurborg og Kópavogi.