Námskeið 1 er ætlað börnum frá 11 til 14 ára aldurs. Þetta námskeið er fyrir algjöra byrjendur í frönsku (A1.1).
Nemendur læra að skilja og nota auðveldar setningar og orðaforða um daglegt líf. Nemendurnir eru hvattir að tjá sig á frönsku í námskeiðinu samkvæmt ýmsum þemum: daglegt líf, sögur, tónlist og leikir.
Þetta námskeið býður nemendum upp á mörg þroskandi og skemmtileg verkefni sem efla námið í frönsku með því að skrifa, að lesa, að tala og að skilja talmál.
Kennslubók: Adosphère 1 (Hachette) fyrri hluti.
Að loknu námskeiðinu stendur börnum til boða að taka DELF Prim A1.1 prófið
Ein klukkustund í hverri viku.
Það þarf að minnsta kosti fjóra nemendur til að opna námskeiðið. Hámark: 6 nemendur.
Frestun og forföll
- Verði tímum frestað vegna veikinda kennara eða öðrum ástæðum verður það bætt upp í lok annanna.
Styrkir
Munið að athuga með námsskeiðsstyrki hjá Reykjavíkurborg og Kópavogi.