Mælskunámskeið á frönsku
Mælskunámskeiðið á frönsku hefur það markmið að þjálfa nemendur í mælskulist. Markmiðið er að hjálpa nemendum að tala betur og efla mælsku sína til þess að sannfæra viðmælendur. Á þessu námskeiði verður kennt hvernig á að nota röddina sína og líkamann sinn í umræðum. Það verður líka kennt hvernig á að byggja upp röksemdir.
Athugið: mælskunámskeiðið á frönsku er ekki talnámskeið.
Nemendur kynnast líka heimildarmyndinni À voix haute : La Force de la parole eftir Stéphane de Freitas (2016) sem fjallar um mælskulist.
Markmið
- að bæta tjáningu sína í frönsku.
- að efla framburð og hljómfall á frönsku
- að bæta röksemdaleiðslu sína
- að öðlast aukið sjálfstraust í talmáli
Stig A2 – B1
Kennari: Madeleine Boucher
Frestun og forföll
- Verði tímum frestað vegna veikinda kennara eða öðrum ástæðum verður það bætt upp í vikunni sem byrjar 1. apríl 2019.
- Skilmálar hér.
- Nemendurnir fá viðurkenningu í lok annarinnar ef þeir hafa mætt að minnsta kosti 70% á námskeiðið.
Styrkir til náms og greisðlur
Mundu að athuga með námsskeiðsstyrki hjá stéttarfélaginu þínu eða hjá Vinnumálastofnun.
Hægt er að skipta greiðslunni í tvennt og greiða í heimabanka.