Ninna Pálmadóttir ásamt öðrum leikstýrum ræða saman
Ninna Pálmadóttir, leikstjóri og sigurvegari Sólveig Anspach verðlauna 2020 ásamt Kristínu Jóhannesdóttur, Tinnu Hrafnsdóttur og Önnu Karín Lárusdóttur ræða saman á íslensku um kvennahreyfinguna innan kvikmyndalistarinnar á Íslandi.
Stuttmyndasamkeppni Sólveigar Anspach var stofnuð árið 2016. Markmið keppninnar er að heiðra stuttmyndir sem leikstýrt er af frönskum eða frönskumælandi / íslenskum eða íslenskumælandi konum, en um leið að styðja við frumlega kvikmyndagerð kvenna. Sólveigar Anspach samkeppnin er opin stuttmyndum sem konur hafa leikstýrt. Keppnin er samvinna á milli Frönsku kvikmyndahátíðarinnar og RVK Feminist Film Festival.
Dagskrá
-
- Sýning stuttmyndarinnar „Paperboy“ eftir Ninnu Pálmadóttur.
- Kynning á ensku á Sólveig Anspach verðlaunum.
- Umræða á íslensku á milli Ninnu Pálmadóttur, Kristínar Jóhannesdóttur, Tinnu Hrafnsdóttur og Önnu Karínar Lárusdóttur um kvennahreyfinguna innan kvikmyndalistarinnar á Íslandi. Hægt verður að spyrja þær spurninga í lok umræðunnar.
Viðburðurinn verður haldinn í Alliance Française í Reykjavík, Tryggvagötu 8, 101 Reykjavík
Upplýsingar
-
- Verið öll velkomin
- Staðsetning: Alliance Française í Reykjavík, Tryggvagötu 8, 101 Reykjavík
- Dagsetning og tímasetning: Þriðjudagur 12. október, kl. 20:30
Þessi viðburður er í boði með atbeina sendiráðs Frakklands á Íslandi og Alliance Française í Reykjavík.