🎬 Frumsýning á myndinni "Holy Cow" í Bíó Paradís!
Komdu fimmtudaginn 15. maí kl. 21:00 og upplifðu frumsýninguna á þessari kvikmynd sem hefur vakið mikla athygli í Frakklandi!
Eftir sýninguna verður boðið upp á léttvínsglas og dregið verður í happdrætti – sætanúmerin verða notuð sem miðar – þar sem þú getur unnið verðlaun, þar á meðal bragðgóðan franskan ost!
Ekki missa af þessari sérstöku kvöldstund í Bíó Paradís!
Frekari upplýsingar
Staðsetning: Bíó Paradís
Dags- og tímasetning: fimmtudagur 15. maí kl. 21
Sýnd með enskum texta.
Lengd: 92 mín
Um bíómyndina
Við fylgjum hinum áhyggjulausa unglingi Totone, sem eyðir dögum sínum í dans og drykkju. Þegar hann þarf skyndilega að sjá fyrir sjö ára systur sinni, neyðist hann til að taka ábyrgð.
Í leit að tekjum beinir hann allri orku sinni í að framleiða úrvals comté-ost með það að markmiði að vinna til peningaverðlauna í ostasamkeppni.
Áhrifamikil kvikmynd sem frumsýnd var á kvikmyndahátíðinni Cannes þar sem hún hreppi Ungmennaverðlaunin (Youth Award) árið 2024 ásamt því að vinna hin virtu César verðlaun fyrir bestu fyrstu mynd í fullri lengd.