
Námskeið 2 í Cycle 2 er framhald kennslunnar í námskeiði 1. Því er ætlað að efla kunnáttu í skrifmáli. Þetta stig er efling skriftar og lestrar í frönsku.
Nemendur styrkja lestrarfærni sína og verða öruggari í að lesa stutta texta sjálfstætt. Þeir læra að skrifa heilar og skýrar setningar og kynnast flóknari hljóðum í frönsku. Í málfræði læra þeir um nafnorð, sagnorð og lýsingarorð, auk kyns og tölu orða og nútíðar algengra sagna. Áhersla er lögð á bæði munnlega og skriflega tjáningu.
-
- Lesbók og vinnubók: Mon gros cahier pour apprendre à lire et à écrire (að kaupa aukalega í september)
- Lengd tímana: 75 mín í hverri viku (32 vikur á skólaárinu 2026-2027).
- Það þarf að minnsta kosti fjóra nemendur til að opna námskeiðið. Hámark: 8 nemendur.
- Verði tímum frestað vegna veikinda kennara eða öðrum ástæðum verður það bætt upp í lok annanna.
Styrkir
Munið að athuga með námsskeiðsstyrkum.
Hægt er líka að fá staðfestingu fyrir greiðslu til að sækja um styrk.






