Frönskufestival í tilefni af 50 ára afmæli Félags frönskukennara og alþjóðlegum degi franskrar tungu í Veröld – húsi Vigdísar
Dagskrá
kl. 15:30-16:30 í Auðarsal
-
- Verðlaunaafhending í myndbandasamkeppni frönskunemenda. Sendiherra Frakklands á Íslandi, Guillaume Bazard, veitir verðlaunin við hátíðlega athöfn. Veitt verða verðlaun í tveimur flokkum, grunnskólanemenda og framhaldsskólanema.
- Nemendur úr Laugalækjarskóla og Landakotsskóla syngja á frönsku.
Frá kl. 16:30 til 18:00 verður opið hús í Veröld (fyrir framan Auðarsal og kaffihús – hæð 0)
-
- Hljómsveitin Les métèques spilar ljúfa tóna. Boðið verður upp á crêpes frá Krepjavík, afmælisköku og kaffi.
- Einnig verður hægt að kynna sér námsframboð í frönsku bæði á Íslandi og erlendis.
Að dagskránni standa : Félag frönskukennara á Íslandi, Alliance française í Reykjavík, frönskudeild Háskóla Íslands og sendiráð Frakklands á Íslandi.
Öll velkomin !