Námskeið 2 í Cycle 3 hefur það markmið að bæta við kunnáttu úr námskeiði 1. Nemendurnir ná sjálfstæðum tökum á tungumálinu. Þetta stig hefur það markmið að efla skriftina og lesturinn á frönsku.
Nemendur læra sjálfstætt að lesa texta. Þeir æfa sig á að lesa hátt og skýrt og líka í hljóði. Þeir læra að skrifa greinargóða og vel uppbyggða texta, að skrifa skýrt með réttri starfsetningu og réttri málfræði í frönsku. Þeir læra að greina tungumálið til þess að geta bætt við kunnáttu sína í málfræði, beygingu sagna og stafsetningu.
Á þessu námskeiði er boðið upp á að lesa og greina sígildar bókmenntir.
Að loknu námskeiðinu stendur nemendum til boða að taka DELF Junior A2 eða DELF Junior B1 prófin.
Ein klukkustund í hverri viku (34 vikur).
Það þarf að minnsta kosti fjóra nemendur til að opna námskeiðið. Hámark: 6 nemendur.
Frestun og forföll
- Verði tímum frestað vegna veikinda kennara eða öðrum ástæðum verður það bætt upp í lok annanna.
Styrkir
Munið að athuga með námsskeiðsstyrki hjá Reykjavíkurborg og Kópavogi.