Almennt frönskunámskeið – Fær notandi 1

Þetta fyrsta B1-námskeið styrkir undirstöðuþekkingu frá A1 og A2 og auðveldar yfirfærsluna yfir á B1-stigið. Kynningarkaflinn þjónar sem endurtekning á nútíð, þátíð og framtíð ásamt daglegum orðaforða. Nemendur læra síðan að tjá skoðanir sínar, gefa ráð, ræða sambönd og venjur. Einnig þjálfast þeir í að kynna starf sitt, lýsa vinnuumhverfi sínu og færa rök fyrir sjónarmiðum sínum á skýrari hátt.

Taktu stöðuprófið: http://stoduprof.af.is

Námskeiðið fer fram í 45 mín einu sinni í hverri viku (11,25 klst.)

Kennsluefni

    • Kennslubók: Défi 5 lesbók og æfingabók
      • Bækurnar eru ekki innifaldar.
      • Hægt er að kaupa þær hjá okkur (lesbók: 4.500 kr. / æfingabók: 3.000 kr.)
    • Skriffæri

Styrkir til náms og greiðslur

    • Þetta námskeið er greitt af Utanríkisráðuneytinu

Dagatal

  • DAGSETNING: frá 22. september til og með 8. desember 2026
    enginn tími á 20. október
  • TÍMASETNING: þriðjudaga kl. 12:30-13:15

Það er alveg mögulegt að greiða með millifærslu án gjalds. Í því tilviki vinsamlega sendið okkur tölvupóst (alliance@af.is) til að láta okkur vita.

essai1

Af hverju franska?

Vídeó, Röksemd
Cq9J1WfVUAAglhb

Stöðupróf

Hvernig á að skrá sig?
ONU6RW0

Gerast félagi

Bókasafn, Culturethèque
Education-OpportunitySmall

Próf

DELF-DALF, TCF
conditions-generales-vente-prestations-services-1024x341

Skilmálar

Almennir skilmálar