Almennt frönskunámskeið fyrir byrjendur – Millistig og notkun tungumálsins 1

Námskeiðið A2.3 er í beinu framhaldi af A2.3 og gefur nemendunum tækifærið á að læra hvernig á að fagna einhverju, að skipuleggja viðburð, að segja gamansögu o.s.fv.

Námskeiðið fer fram í tvo klukkutíma tvisvar í hverri viku.

8 vikur af námskeiðum (32 klst.)

Staðnám með fjarkennsku í beinni útsendingu

Býrð þú fyrir utan höfuðborgarsvæðið? Ertu oft á ferðalagi? Er óveður? Viltu frekar læra heima? Í dag skiptir sveigjanleiki í námi miklu máli. Við bjóðum nú upp á nýja lausn sem gefur nemendum kost á að taka þátt í frönskunámskeiði hvar sem þeir eru. Nemendur geta nú valið á milli tveggja valkosta fyrir hvern tíma í námskeiðinu: að læra á staðnum eða að vera í fjarkennslu í beinni. Frekari upplýsingar hér.

Kennsluefni

    • Kennslubók: Défi actuel A2 lesbók og æfingabók (kaflar 7, 8 og undirbúningur fyrir DELF prófið)
      • Bækurnar eru ekki innifaldar.
      • Défi actuel A2 er notuð fyrir allar þrjár annirnar sem tekur að klára A2.
      • Hægt er að kaupa þær hjá okkur (lesbók: 5.000 kr. / æfingabók: 4.500 kr.)
      • Hægt er að fá bækurnar með bréfpósti með aukagjaldi (vinsamlegast hafðu samband ef þú vilt fá þær sendar)
    • Skriffæri (staðnám)
    • Tölva, gott netsamband, heyrnatól með innbyggðan hljóðnema er kostur (fjarkennsla í beinni)

Frestun og viðurkenning

  • Verði tímum frestað vegna veikinda kennara eða öðrum ástæðum verður það bætt upp í lok annarinnar.
  • Nemendurnir fá viðurkenningu í lok annarinnar ef þeir hafa mætt að minnsta kosti 70% á námskeiðið.

Styrkir til náms og greiðslur

    • Mundu að athuga með námsskeiðsstyrki hjá stéttarfélaginu þínu eða hjá Vinnumálastofnun.
    • Hægt er að skipta greiðslunni í tvennt og greiða í heimabanka.

Dagatal

dagatal_fullordin_2026-2027
  • DAGSETNING: frá 25. ágúst til og með 15 október 2026
    tímar til að vinna upp 20. til og með 22. október 2026
  • TÍMASETNING: þriðjudaga og fimmtudaga kl. 18:15-20:15
  • ALMENNT VERÐ: 97.600 kr. (92.720 kr fyrir 15 août 2026 með afsláttakóðanum: „EARLYBIRD“)
  • VERÐ MEÐ AFSLÆTTI*: 87.840 kr (afsláttakóði: „SPECIAL“)
    Þú verður beðin(n) um að framvísa skilríkjum (nemendaskírteini / eftirlaunaskírteini) í fyrsta tímanum.
    *
    skráningarskilmálar hér.

Það er alveg mögulegt að greiða með millifærslu án gjalds. Í því tilviki vinsamlega sendið okkur tölvupóst (alliance@af.is) til að láta okkur vita.

essai1

Af hverju franska?

Vídeó, Röksemd
Cq9J1WfVUAAglhb

Stöðupróf

Hvernig á að skrá sig?
ONU6RW0

Gerast félagi

Bókasafn, Culturethèque
Education-OpportunitySmall

Próf

DELF-DALF, TCF
conditions-generales-vente-prestations-services-1024x341

Skilmálar

Almennir skilmálar