Stuttmyndagerð á frönsku
Námskeið til að læra að segja sögu á frönsku, skapa persónur og taka upp alvöru litlar senur eins og atvinnumenn!
Dagsetningar og tímasetningar
Vinnustofur fara fram frá 9:00 til hádegis daglega.
Það stendur líka til boða að borða nesti milli hádegis og 13:00 og horfa svo á bíómynd eða fara út ef veðrið leyfir til 14:30.
Upplýsingar
- 
- Aldur: 8 til 10 ára
 - Lágmark og hámark þátttakenda : 4 til 8 þátttakendur
 - Smá hressing verður í boði en börnin þurfa að koma með hádegisnesti ef þau borða í Alliance í hádeginu.
 - Það er ekki skylda að kunna frönsku til að taka þátt. Markmiðið er að uppgötva tungumál í skemmtilegu umhverfi.
 
 

