Pönnukökur í Alliance Française
Laugardaginn 28. febrúar frá kl. 9:30 til 14:00 mun Florent baka pönnukökur í Alliance Française.
Í Frakklandi er hefð fyrir því að borða pönnukökur 2. febrúar á Kyndilmessu. Upprunalega er þetta trúarhátíð, en í dag er þetta fyrst og fremst notaleg og félagsleg hefð. Þetta er svolítið seinkað — en betra seint en aldrei!
Ykkur er velkomið að koma með drykki með.
Vonumst til að sjá ykkur þar!
Staðsetning og tímasetningar
-
-
📅 Dagsetningar: laugardagur 28. febrúar 2026 kl.9:30-14:00
-
📍 Staðsetning: Alliance Francaise
-

