Almennt frönskunámskeið fyrir lengra komna
Í þessu fyrsta námskeiði hefst vinna á B2-stigi með aukinni áherslu á röksemdafærslu og blæbrigðaríka tjáningu. Nemendur læra að tjá efa, samþykki eða andstöðu, verja skoðanir sínar og greina flóknar aðstæður. Viðfangsefnin snúa meðal annars að mannlegum samskiptum, ferðalögum, siðferðilegum spurningum og samfélagsmálum. Sérstök áhersla er lögð á lestur fjölbreyttra texta og vel útfærða skoðanatjáningu.
Taktu stöðuprófið: http://stoduprof.af.is
Námskeiðið fer fram í 45 mín einu sinni í hverri viku. 11 vikur af námskeiðum (8,25 klst.)
Kennsluefni
-
- Kennslubók: L’Atelier B2 lesbók og æfingabók
- Bækurnar eru ekki innifaldar.
- Hægt er að kaupa þær hjá okkur (lesbók: 4.500 kr. / æfingabók: 3.000 kr.)
- Skriffæri
- Kennslubók: L’Atelier B2 lesbók og æfingabók
Styrkir til náms og greiðslur
- Mundu að athuga með námsskeiðsstyrki hjá stéttarfélaginu þínu eða hjá Vinnumálastofnun.
- Hægt er að skipta greiðslunni í tvennt eða í þrennt á Abler.
Dagatal
Það er alveg mögulegt að greiða með millifærslu án gjalds. Í því tilviki vinsamlega sendið okkur tölvupóst (alliance@af.is) til að láta okkur vita.






