Elskar barnið þitt að skapa?
Þessar skapandi vinnustofur eru fyrir börn 10 ára og eldri sem vilja bæta frönskukunnáttu sína með því að búa til smáhluti. Börnin munu læra að nota frönsku á skapandi og listrænan hátt!
Þátttakendur verða hvattir til að taka þátt í skemmtilegum verkefnum með því að fylgja einföldum leiðbeiningum.
Upplýsingar
- Aldur: 10 ára og eldri
- Lágmark og hámark þátttakenda : 4 til 8 þátttakendur
- Smá hressing verður í boði
- Börnin þurfa að skilja frönsku (lágmark A2) til að geta fylgst með vel.
- Hægt er að láta börnin koma með nesti, borða á staðnum og horfa á teiknimynd kl. 13-14 (valkvætt og frítt).

