Alliance Française í Reykjavík býður upp á hátíð franskrar tungu 2026 í samstarfi við sendiráð Frakklands á Íslandi.

L’Alliance Française de Reykjavík propose le festival de la francophonie 2026 en collaboration avec l’ambassade de France en Islande.

MENNINGARVIÐBURÐIR (í vinnslu)

DAGSKRÁ HÁTÍÐARINNAR

7. febrúar – 23. ágúst 2026

  • á opnunartíma
    Listasafn Árnesinga
  • Sýning Eitraðar grundir með Bernard Khoury, líbönskum arkitekt
    Sýningrstjóri: Yara Zein

Miðvikudagur 4. mars

  • kl. 21.00
    Hafnar.haus, Tryggvagata 17
  • Tónleikakvöld S27#22
    með frönsku listakonunni Céline Pierre, í listadvöl í Skagaströnd

Miðvikudagur 4. mars

  • kl. 14:00
    Bíó Paradís
  • Sýning teiknimyndarinnar „Arco“ eftir Ugo Bienvenu og listasmiðja

Þriðjudagur 10. mars

  • kl. 19:15
    Alliance Française í Reykjavík

Spurningaleikur um franska tungu á milli málhópa Alliance

Fimmtudagur 19. mars

  • kl. 18:30-20:00
    Alliance Française í Reykjavík

Spurningaleikur um Líbanon (þekktir einstaklingar, tónlist, menning, matargerð
Smökkun á líbönskum mat. Viðburður á ensku

Föstudagur 20. mars

  • kl. 18:30-20:00
    Alliance Française í Reykjavík

Fyrirlestur um Jean-Baptiste Charcot og strand skipsins Pourquoi Pas ?
Fyrirlesari: Sigurður Egill Þorvaldsson. Viðburður á íslensku

Laugardagur 21. mars

  • 14:00
    Alliance Française í Reykjavík
  • AFLÝST

AFLÝST
Ratleikur í nágrenni Alliance Française
, þar sem þátttakendur uppgötva menningu og tungumál frönskumælandi landa með þrautum og leikjum.
Að lokum verða sigurvegarar verðlaunaðir og öllum boðið í kaffiboð með léttum veitingum.

Sunnudagur 22. mars

  • kl. 17
    Bíó Paradís

Sýning á Bleu eftir Krzysztof Kieślowski, með Juliette Binoche
Samstarf við sendiráð Póllands og Bíótekið

  • kl. 19:30
    Bíó Paradís

Sýning á Blanc eftir Krzysztof Kieślowski, með Julie Delpy
Samstarf við sendiráð Póllands og Bíótekið

Sunnudagur 29. mars

  • kl. 16:30
    Bíó Paradís

Sýning á Une vie privée eftir Rebecca Zlotowski, með Jodie Foster
að lokinni sýningu boðið upp á léttar veitingar – í samstarfi við Stockfish Film Festival

Föstudagur 10. apríl

  • kl. 15:00
    Veröld – hús Vigdísar

Málþing í  Auðarsal í Veröld – húsi Vigdísar þann 10. apríl kl. 15:00-17:30 þar sem fjallað verður um ólíkar hliðar á verkum Camus og þau viðbrögð sem þau hafa vakið og vekja enn. Viðburður á íslensku.