Styrkingarnámskeið fyrir A2 stig

Þessi námskeið gerir þér kleift að byrja aftur í frönsku á hægum hraða og rifja upp tíðir (nútíð, þátíð, framtíð) sem og orðaforða fyrir algengar aðstæður (veitingastað, matvörur, ferðalög, vinnu…) auk þess að undirbúa þig fyrir A2 eða B1 námskeið í haust.

Námskeiðið fer fram í tvo klukkutíma einu sinni í hverri viku.
8 vikur af námskeiðum (16 klst.)

Til að taka þátt í þessum samtalsnámskeiði þarf að hafa náð tungumálastigi A1/A2 samkvæmt CECRL (samevrópska tungumálarammanum).

Á þessu stigi getur þú skilið einföld dagleg samskipti, tjáð þig um kunnugleg efni, og tekið þátt í einföldum samtölum ef hinn aðilinn talar hægt og skýrt.

Ef þú ert ekki viss um þitt frönskustig geturðu tekið stöðupróf á 👉 http://stoduprof.af.is

Kennsluefni

  • Skriffæri (staðnám)
  • Tölva, gott netsamband, heyrnatól með innbyggðan hljóðnema er kostur. (ef maður velur fjarkennslu)

Frestun og viðurkenning

  • Verði tímum frestað vegna veikinda kennara eða öðrum ástæðum verður það bætt upp í lok annarinnar.
  • Nemendurnir fá viðurkenningu í lok annarinnar ef þeir hafa mætt að minnsta kosti 70% á námskeiðið.

Styrkir til náms og greiðslur

    • Mundu að athuga með námsskeiðsstyrki hjá stéttarfélaginu þínu eða hjá Vinnumálastofnun.
    • Hægt er að skipta greiðslunni í tvennt og greiða í heimabanka.

Dagatal

2025_2026_adultes
  • DAGSETNING: frá 23. mars til og með 1. júní 2026

    tímar til að vinna upp 8. júní 2026

  • TÍMASETNING: mánudaga kl. 18:15-20:15
  • ALMENNT VERÐ: 44.640 kr. (42.408 kr. fyrir 16 mars 2026 með afsláttakóðanum: „EARLYBIRD“)
  • VERÐ MEÐ AFSLÆTTI*: 40.176 kr (afsláttakóði: „SPECIAL“)
    Þú verður beðin(n) um að framvísa skilríkjum (nemendaskírteini / eftirlaunaskírteini) í fyrsta tímanum.

    *skráningarskilmálar hér.

Skráning

Það er alveg mögulegt að greiða með millifærslu án gjalds. Í því tilviki vinsamlega sendið okkur tölvupóst (alliance@af.is) til að láta okkur vita.

essai1

Af hverju franska?

Vídeó, Röksemd
Cq9J1WfVUAAglhb

Stöðupróf

Hvernig á að skrá sig?
ONU6RW0

Gerast félagi

Bókasafn, Culturethèque
Education-OpportunitySmall

Próf

DELF-DALF, TCF
conditions-generales-vente-prestations-services-1024x341

Skilmálar

Almennir skilmálar