Ég ákæri – Roman Polanski

Ég ákæri eftir Roman Polanski Drama með enskum texta. 2019, 132 mín. Leikarar: Jean Dujardin, Louis Garrel, Emmanuelle Seigner. Árið 1894 var Alfred Dreyfus, liðsforingi af gyðingaættum í franska hernum, dæmdur til ævilangrar útlegðar fyrir að hafa látið Þýskalandi í té leyniskjöl. Marie-Georges Picquart undirofursti kemst að því að það var ekki Dreyfus sem stóð…

Mynd af brennandi stúlku – Céline Sciamma

Mynd af brennandi stúlku eftir Céline Sciamma Drama, Saga, Rómantík með íslenskum eða enskum texta. 2019, 122 mín. Leikarar: Noémie Merlant, Adèle Haenel, Luàna Bajrami. Hin unga listakona Marianne er ráðin í verkefni að mála portrett af Héloïse, tilvonandi brúður ríkrar fjölskyldu, sem hefur ítrekað neitað að sitja fyrir því hún neitar að giftast manninum…

Fagra veröld – Nicolas Bedos

Fagra veröld eftir Nicolas Bedos Gamanmynd, Drama með íslenskum eða enskum texta. 2019, 116 mín. Leikarar: Daniel Auteuil, Guillaume Canet, Doria Tillier, Fanny Ardant, Pierre Arditi. Stórkostleg rómantísk gamanmynd sem fjallar um Daniel, sem gefið er tækifæri á því að endurlifa fortíð sína í þeim tilgangi að bjarga hjónabandinu. Vönduð dramatísk kvikmynd sem endurspeglar ástina,…

Vinnustofa: smjör, gerjun og menning – Anaïs Hazo – 23. nóvember frá kl. 14-16

Vinnustofa: smjör, gerjun og menning Alliance Française í Reykjavík laugardagur 23. nóvember 2019 frá kl. 14-16 Í tilefni af hátíðinni Keimur 2019 og með atbeina sendiráðs Frakklands á Íslandi býður Alliance Française í Reykjavík upp á vinnustofu um smjör og gerjun laugardaginn 23. nóvember, kl. 14-16 í viðurvist kokksins/listakonunnar Anaïs Hazo. Smjör er mikilvægur þáttur…

Keimur 2019

“Keimur 2019” Dagana 19. – 29. nóvember 2019 bjóða Alliance Française í Reykjavík og sendiráð Frakklands á Íslandi, í þriðja skiptið upp á hátíð fyrir bragðlaukana sem nefnist Keimur. Hátíðin er helguð franskri matgerðarlist og í þetta skipti sérstaklega gerjun. Meðal annars dvelst Anaïs Hazo nokkra daga á landinu. Hún heldur vinnustofur þar sem hún…

Rafræn bókmenntaganga „R YKJ V K, SNAPSHOTS“ eftir Philippe Guerry

Rafræn bókmenntaganga „R YKJ V K, SNAPSHOTS“ eftir Philippe Guerry í smáforritinu Reykjavík Culture Walks. Þessi bókmenntaganga verður afhjúpuð 5. nóvember kl. 17 í viðurðist rithöfundarins Philippe Guerry. Brottför við Ráðhús Reykjavíkur Koma í Alliance Française í Reykjavík (léttvínsglas og snarl).   Philippe Guerry skrifaði þessa rafrænu bókmenntagöngu „R YKJ V K, SNAPSHOTS“ í gestadvöl…

Bókahátíð 2019

Þriðja bókahátiðin Laugardaginn 2. nóvember 2019, kl. 13-17 býður Alliance Francaise í Reykjavík þriðja sinni til bókahátíðar. Í boði verður bókamarkaður, sala þriggja bóka eftir Tomi Ungerer á íslensku sem am forlag gaf út, sýningin „R YKJ V K, SNAPSHOTS“ eftir Philippe Guerry og skapandi vinnustofa um ritlist, teikningu og framleiðsla smábóka. DAGSKRÁ 2. NÓVEMBER…

Sýning R YKJ V K, SNAPSHOTS – Philippe Guerry – 30. okt til 8. nóv. 2019

R YKJ V K, SNAPSHOTS Ljósmynda- og textasýning eftir Philippe Guerry Sýning í Alliance Française í Reykjavik 30. október – 8. nóvember 2019 Opnun miðvikudaginn 30. október 2019 kl. 18 (léttvínsglas og snarl) Ljósmynda- og textasýningin R YKJ V K, SNAPSHOTS eftir Philippe Guerry býður upp á sérstaka ferðahandbók sem sýnir frumlega lýsingu af íslensku…