Almennt frönskunámskeið – Sjálfbjarga á tungumálinu 1
Námskeiðið B1.1 er í beinu framhaldi af A2 og gefur nemendum tækifæri á að rifja upp lágmarkskunnáttu á frönsku og að læra nýja þekkingu eins og að tala um ástarsamband og vináttu, að tala um klisjur og um vinunna sína, að greina frá afleiðingum.
Námskeiðið fer fram í tvo klukkutíma tvisvar í hverri viku (32 klst.)
Staðnám með fjarkennsku í beinni útsendingu
Býrð þú fyrir utan höfuðborgarsvæðið? Ertu oft á ferðalagi? Er óveður? Viltu frekar læra heima? Í dag skiptir sveigjanleiki í námi miklu máli. Við bjóðum nú upp á nýja lausn sem gefur nemendum kost á að taka þátt í frönskunámskeiði hvar sem þeir eru. Nemendur geta nú valið á milli tveggja valkosta fyrir hvern tíma í námskeiðinu: að læra á staðnum eða að vera í fjarkennslu í beinni. Frekari upplýsingar hér.
Kennsluefni
- 
- Kennslubók: L’Atelier B1 lesbók og æfingabók (kaflar 0, 1, 2 og 3)
- Bækurnar eru ekki innifaldar.
 - L’Atelier B1 er notuð fyrir allar fjórar annirnar sem tekur að klára B1.
 - Hægt er að kaupa þær hjá okkur (lesbók: 4.800 kr. / æfingabók: 3.400 kr.)
 - Hægt er að fá bækurnar með bréfpósti með aukagjaldi (vinsamlegast hafðu samband ef þú vilt fá þær sendar)
 
 - Skriffæri (staðnám)
 - Tölva, gott netsamband, heyrnatól með innbyggðan hljóðnema er kostur (fjarkennsla í beinni)
 
 - Kennslubók: L’Atelier B1 lesbók og æfingabók (kaflar 0, 1, 2 og 3)
 
Frestun og viðurkenning
- Verði tímum frestað vegna veikinda kennara eða öðrum ástæðum verður það bætt upp í lok annarinnar.
 - Nemendurnir fá viðurkenningu í lok annarinnar ef þeir hafa mætt að minnsta kosti 70% á námskeiðið.
 
Styrkir til náms og greiðslur
- 
- Mundu að athuga með námsskeiðsstyrki hjá stéttarfélaginu þínu eða hjá Vinnumálastofnun.
 - Hægt er að skipta greiðslunni í tvennt og greiða í heimabanka.
 
 






