Almennt frönskunámskeið fyrir byrjendur – Millistig og notkun tungumálsins 1

Í námskeiðinu A2.1 – Að skilja umhverfið og tala um sjálfan sig styrkja nemendur grunninn frá A1 og læra að tjá sig nákvæmar um daglegt líf sitt. Þeir læra að lýsa hlutum og tilgangi þeirra, ræða heilsu, matarvenjur og persónulega reynslu. Nemendur geta sagt frá lífsleið sinni, lýst einkennum veikinda, gefið og þegið ráð og tjáð skoðanir á mat og neysluvenjum. Á þessu stigi kynnast þeir einnig mikilvægum málfræðiatriðum A2-stigsins, meðal annars aukinni notkun passé composé, imparfait, tilvísunarfornafna og andlagsfornafna.

Taktu stöðuprófið: http://stoduprof.af.is

Námskeiðið fer fram í tvo klukkutíma einu sinni í hverri viku. 16 vikur af námskeiðum (32 klst.)

Staðnám með fjarkennsku í beinni útsendingu

Býrð þú fyrir utan höfuðborgarsvæðið? Ertu oft á ferðalagi? Er óveður? Viltu frekar læra heima? Í dag skiptir sveigjanleiki í námi miklu máli. Við bjóðum nú upp á nýja lausn sem gefur nemendum kost á að taka þátt í frönskunámskeiði hvar sem þeir eru. Nemendur geta nú valið á milli tveggja valkosta fyrir hvern tíma í námskeiðinu: að læra á staðnum eða að vera í fjarkennslu í beinni. Frekari upplýsingar hér.

Kennsluefni

    • Kennslubók: Défi actuel A2 lesbók og æfingabók (kaflar 0, 1, 2 og 3)
      • Bækurnar eru ekki innifaldar.
      • Défi actuel A2 er notuð fyrir allar þrjár annirnar sem tekur að klára A2.
      • Hægt er að kaupa þær hjá okkur (lesbók: 5.000 kr. / æfingabók: 4.500 kr.)
      • Hægt er að fá bækurnar með bréfpósti með aukagjaldi (vinsamlegast hafðu samband ef þú vilt fá þær sendar)
    • Skriffæri (staðnám)
    • Tölva, gott netsamband, heyrnatól með innbyggðan hljóðnema er kostur (fjarkennsla í beinni)

Frestun og viðurkenning

  • Verði tímum frestað vegna veikinda kennara eða öðrum ástæðum verður það bætt upp í lok annarinnar.
  • Nemendurnir fá viðurkenningu í lok annarinnar ef þeir hafa mætt að minnsta kosti 70% á námskeiðið.

Styrkir til náms og greiðslur

  • Mundu að athuga með námsskeiðsstyrki hjá stéttarfélaginu þínu eða hjá Vinnumálastofnun.
  • Hægt er að skipta greiðslunni í tvennt eða í þrennt á Abler.

Dagatal

dagatal_fullordin_2026-2027
  • DAGSETNING: frá 27. ágúst til og með 17 desember 2026
    tímar til að vinna upp 7. janúar 2027
  • TÍMASETNING: fimmtudaga kl.13-15
  • ALMENNT VERÐ: 97.600 kr. (92.720 kr. fyrir 15 août 2026 með afsláttakóðanum: “EARLYBIRD”)
  • VERÐ MEÐ AFSLÆTTI*: 87.840 kr (afsláttakóði: „SPECIAL“)
    Þú verður beðin(n) um að framvísa skilríkjum (nemendaskírteini / eftirlaunaskírteini) í fyrsta tímanum.
    *
    skráningarskilmálar hér.

Það er alveg mögulegt að greiða með millifærslu án gjalds. Í því tilviki vinsamlega sendið okkur tölvupóst (alliance@af.is) til að láta okkur vita.

essai1

Af hverju franska?

Vídeó, Röksemd
Cq9J1WfVUAAglhb

Stöðupróf

Hvernig á að skrá sig?
ONU6RW0

Gerast félagi

Bókasafn, Culturethèque
Education-OpportunitySmall

Próf

DELF-DALF, TCF
conditions-generales-vente-prestations-services-1024x341

Skilmálar

Almennir skilmálar