Almennt frönskunámskeið fyrir byrjendur – Byrjunarstig 2

Í námskeiðinu A1.3 – Að dýpka færni og undirbúa næstu skref byggja nemendur áfram á þeirri þekkingu sem þeir hafa öðlast á fyrri námskeiðum. Þeir læra að tala um mat og smekk, kynna uppskriftir, segja frá einföldum atburðum í fortíðinni og lýsa lífsferli einstaklinga. Einnig þjálfast þeir í að rata um borgir, spyrja um upplýsingar, versla og ræða framtíðaráform. Markmiðið er að styrkja alla þætti A1-stigsins og auka öryggi í daglegum samskiptum. Fyrir þá sem hafa áhuga er hægt að samþætta undirbúning fyrir DELF A1-prófið sem formlega staðfestingu á tungumálafærninni.

Taktu stöðupróf: http://stoduprof.af.is

Námskeiðið fer fram í tvo klukkutíma tvisvar í hverri viku. (32 klst.)

Staðnám með fjarkennsku í beinni útsendingu

Býrð þú fyrir utan höfuðborgarsvæðið? Ertu oft á ferðalagi? Er óveður? Viltu frekar læra heima? Í dag skiptir sveigjanleiki í námi miklu máli. Við bjóðum nú upp á nýja lausn sem gefur nemendum kost á að taka þátt í frönskunámskeiði hvar sem þeir eru. Nemendur geta nú valið á milli tveggja valkosta fyrir hvern tíma í námskeiðinu: að læra á staðnum eða að vera í fjarkennslu í beinni. Frekari upplýsingar hér.

Kennsluefni

    • Kennslubók: Défi Actuel 1 lesbók og æfingabók (kaflar 7, 8 og dýpri þekking á tungumálinu)
      • Bækurnar eru ekki innifaldar.
      • Défi Actuel 1 er notuð fyrir allar þrjár annirnar sem tekur að klára A1.
      • Hægt er að kaupa þær hjá okkur (lesbók: 4.500 kr. / æfingabók: 3.000 kr.)
      • Hægt er að fá bækurnar með bréfpósti með aukagjaldi (vinsamlegast hafðu samband ef þú vilt fá þær sendar)
    • Skriffæri (staðnám)
    • Tölva, gott netsamband, heyrnatól með innbyggðan hljóðnema er kostur (fjarkennsla í beinni)

Frestun og viðurkenning

  • Verði tímum frestað vegna veikinda kennara eða öðrum ástæðum verður það bætt upp í lok annarinnar.
  • Nemendurnir fá viðurkenningu í lok annarinnar ef þeir hafa mætt að minnsta kosti 70% á námskeiðið.

Styrkir til náms og greiðslur

  • Mundu að athuga með námsskeiðsstyrki hjá stéttarfélaginu þínu eða hjá Vinnumálastofnun.
  • Hægt er að skipta greiðslunni í tvennt eða í þrennt á Abler.

Dagatal

dagatal_fullordin_2026-2027
  • DAGSETNING: frá 24. ágúst til og með 14 október 2026
    tímar til að vinna upp 19. til og með 21. október 2026
  • TÍMASETNING: mánudaga og miðvikudaga kl. 12-14
  • ALMENNT VERÐ: 97.600 kr. (92.720 kr. fyrir 15 août 2026 með afsláttakóðanum: “EARLYBIRD”)
  • VERÐ MEÐ AFSLÆTTI*: 87.840 kr (afsláttakóði: „SPECIAL“)
    Þú verður beðin(n) um að framvísa skilríkjum (nemendaskírteini / eftirlaunaskírteini) í fyrsta tímanum.
    *
    skráningarskilmálar hér.

Það er alveg mögulegt að greiða með millifærslu án gjalds. Í því tilviki vinsamlega sendið okkur tölvupóst (alliance@af.is) til að láta okkur vita.

essai1

Af hverju franska?

Vídeó, Röksemd
Cq9J1WfVUAAglhb

Stöðupróf

Hvernig á að skrá sig?
ONU6RW0

Gerast félagi

Bókasafn, Culturethèque
Education-OpportunitySmall

Próf

DELF-DALF, TCF
conditions-generales-vente-prestations-services-1024x341

Skilmálar

Almennir skilmálar