Almennt frönskunámskeið fyrir byrjendur – Byrjunarstig 2

Í námskeiðinu A1.2 – Daglegt líf og samskipti við aðra læra nemendur að tala um daglegt líf sitt, venjur, heimili og frítíma. Þeir geta lýst dæmigerðum degi, sagt frá lífsstíl sínum, kynnt heimili sitt og tjáð skoðanir og óskir. Nemendur læra einnig að gera tillögur, samþykkja eða hafna boðum og lýsa bæði persónuleika og útliti fólks. Áhersla er lögð á að efla sjálfstæði í samskiptum og styrkja færni til að takast á við algengar aðstæður í daglegu lífi.
Taktu stöðupróf: http://stoduprof.af.is
Námskeiðið fer fram í tvo klukkutíma tvisvar í hverri viku.
(32 klst.)
Staðnám með fjarkennsku í beinni útsendingu
Býrð þú fyrir utan höfuðborgarsvæðið? Ertu oft á ferðalagi? Er óveður? Viltu frekar læra heima? Í dag skiptir sveigjanleiki í námi miklu máli. Við bjóðum nú upp á nýja lausn sem gefur nemendum kost á að taka þátt í frönskunámskeiði hvar sem þeir eru. Nemendur geta nú valið á milli tveggja valkosta fyrir hvern tíma í námskeiðinu: að læra á staðnum eða að vera í fjarkennslu í beinni. Frekari upplýsingar hér.
Kennsluefni
-
- Kennslubók: Défi Actuel 1 lesbók og æfingabók (kaflar 4, 5 og 6)
- Bækurnar eru ekki innifaldar.
- Défi Actuel 1 er notuð fyrir allar þrjár annirnar sem tekur að klára A1.
- Hægt er að kaupa þær hjá okkur (lesbók: 4.500 kr. / æfingabók: 3.000 kr.)
- Hægt er að fá bækurnar með bréfpósti með aukagjaldi (vinsamlegast hafðu samband ef þú vilt fá þær sendar)
- Skriffæri (staðnám)
- Tölva, gott netsamband, heyrnatól með innbyggðan hljóðnema er kostur (fjarkennsla í beinni)
- Kennslubók: Défi Actuel 1 lesbók og æfingabók (kaflar 4, 5 og 6)
Frestun og viðurkenning
- Verði tímum frestað vegna veikinda kennara eða öðrum ástæðum verður það bætt upp í lok annarinnar.
- Nemendurnir fá viðurkenningu í lok annarinnar ef þeir hafa mætt að minnsta kosti 70% á námskeiðið.
Styrkir til náms og greiðslur
- Mundu að athuga með námsskeiðsstyrki hjá stéttarfélaginu þínu eða hjá Vinnumálastofnun.
- Hægt er að skipta greiðslunni í tvennt eða í þrennt á Abler.
Dagatal
Það er alveg mögulegt að greiða með millifærslu án gjalds. Í því tilviki vinsamlega sendið okkur tölvupóst (alliance@af.is) til að láta okkur vita.






