Námskeið 2 í Cycle 2 er framhald kennslunnar í námskeiði 1. Því er ætlað að efla kunnáttu í skrifmáli. Þetta stig er efling skriftar og lestrar í frönsku.

Nemendur styrkja lestrarfærni sína og verða öruggari í að lesa stutta texta sjálfstætt. Þeir læra að skrifa heilar og skýrar setningar og kynnast flóknari hljóðum í frönsku. Í málfræði læra þeir um nafnorð, sagnorð og lýsingarorð, auk kyns og tölu orða og nútíðar algengra sagna. Áhersla er lögð á bæði munnlega og skriflega tjáningu.

    • Lesbók og vinnubók: Mon gros cahier pour apprendre à lire et à écrire (að kaupa aukalega í september)
    • Lengd tímana: 75 mín í hverri viku (32 vikur á skólaárinu 2026-2027).
    • Það þarf að minnsta kosti fjóra nemendur til að opna námskeiðið. Hámark: 8 nemendur.
    • Verði tímum frestað vegna veikinda kennara eða öðrum ástæðum verður það bætt upp í lok annanna.

Styrkir

Munið að athuga með námsskeiðsstyrkum.
Hægt er líka að fá staðfestingu fyrir greiðslu til að sækja um styrk.

Skóladagatal

2025_2026_enfants
  • DAGSETNING: frá 29. ágúst 2026 til og með 29. maí 2027 (ítarlegri upplýsingar í skóladagatalinu)
  • TÍMASETNING: ​laugardaga kl. 10:30-11:45
  • VERÐ: 113.200 kr. (107.540 kr. ef skráningin fer fram fyrir 15. ágúst 2026 með afsláttarkóðanum EARLYBIRD)
    Systkinaafsláttur: séu 2 systkini eða fleiri að taka frönskunámskeið reiknast 5% afsláttur af gjöldum barna eftir að fyrsta barn er skráð. Ef aflátturinn virkar ekki á Abler, sendu okkur tölvupóst á alliance@af.is með bankaupplýsingum.

    Það er alveg mögulegt að greiða með millifærslu án gjalds. Í því tilviki vinsamlega sendið okkur tölvupóst (alliance@af.is) til að láta okkur vita.

craysonsenfants

Af hverju franska?

Vídeó, Röksemd
testenfant

Stöðupróf

Hvernig á að skrá sig?
biblioenfant

Gerast félagi

Bókasafn, Culturethèque
delfenfants

Próf

DELF-DALF, TCF
conditions-generales-vente-prestations-services-1024x341

Skilmálar

Almennir skilmálar