Eins dags námskeið á frönsku - Fyrstu kvenleikstjórar kvikmyndasögunnar
Til að byrja með horfa þátttakendur á útdrætti af völdum bíómyndum til að hefja umræðu um kvennahreyfinguna innan kvikmyndalistarinnar. Þátttakendur uppgötva meðal annars verk þeirra Alice Guy og Agnès Varda. Eftir hádegi æfa nemendur að skrifa á frönsku með því að búa til stutta texta í kringum kvikmyndalist.
Lágmarksstig námskeiðsins er B2 (sjálfstæður notandi). Stöðupróf.
Tímasetning: kl. 9-16
Kaffipásurnar og hádegismaturinn eru innifalin í gjaldinu og eru gott tækifæri til þess að halda áfram að tala frönsku.
Vínsglas er innifalið með hádegismatnum.
Föstudagur 28. maí 2021 – Eins dags námskeið á frönsku
Ritun og lesskilningur, munnleg tjáning og skilningur á töluðu máli.
Kennari
- Clarisse Charrier
Kennsluefni
- Við biðjum nemendurna að koma með skriffæri.