Þetta námskeið hefur það markmið að efla listsköpunargáfu barna í gegnum verkefni og kennslu myndlistar á frönsku.
Markmið námskeiðsins:
- Að uppgötva litahringinn.
- Að prófa blöndun lita, að nota málningu og að teikna.
- Að gera litaprufur, að búa til form og efni í tvívídd og þrívídd með því að teikna, að líma, að mála og móta.
- Að æfa sig í landslagsmyndlist, kyrralífsmyndir og portrett eftir myndum og sögum.
- Að þroska hugarheim sinn.
- Að kynnast líkamsfræðum myndlistar og fjarvídd.
- Að kynna og útskýra í talmáli verkefni sín með réttum orðaforða.
Kennsluefni innifalið.
Frá 6 ára.
Það þarf að minnsta kosti fjóra nemendur til að opna námskeiðið.
Stig A2 í frönsku nauðsynlegt
2 klst. í hverri viku (10 vikur)
Munið að athuga með námsskeiðsstyrki hjá Reykjavíkurborg og Kópavogi.