Þessi vinnustofa er ætluð börnum frá 8 til 12 ára aldurs sem vilja efla frönskukunáttu sína í gegnum leiklist. Nemendur æfa sig á frönsku í talmáli og læra að stjórna líkama sínum, rödd sinni og tilfinningum sínum. Þeir læra að nota frönsku á skemmtilega og skapandi hátt.

Í lok vinnustofunnar verður í boði leiksýning handa foreldrunum.

Markmið

    • að efla frönsku sína í talmáli
    • að nota frönsku á skapandi hátt
    • að iðka leiklist
    • að læra að stjórna líkama sínum, rödd sinni og tilfinningum sínum

Upplýsingar

    • Vinnustofan er ætluð nemendunum frá 8 ára til 12 ára.
    • Börnin þurfa að skilja frönsku (lágmark A2) til að geta fylgst með vel.
    • Það þarf að minnsta kosti fjóra nemendur til að opna vinnustofuna. Hámark: 8 nemendur.
    • 12 skipti.
  • DAGSETNINGAR: frá 17. janúar til og með 11. apríl 2025 (hlé 28. febrúar) – 12 skipti
  • TÍMASETNINGAR: föstudaga kl. 15:45-17:45
  • VERÐ: 57.960 kr. (55.200 kr. ef barnið er forskráð fyrir 10. janúar 2025)
    Systkinaafsláttur: séu 2 systkini eða fleiri að taka frönskunámskeið reiknast 5% afsláttur af gjöldum barna eftir að fyrsta barn er skráð.
FORSKRÁNING (ÓKEYPIS)

Vinsamlegast notaðu Abler til að forskrá barnið þitt.
Greiðslan fer fram í janúar 2025 þegar leiklistasmiðjan er staðfest.