Almennt frönskunámskeið fyrir byrjendur – Millistig og notkun tungumálsins
Í námskeiðinu A2 – Að skilja umhverfið og tala um sjálfan sig styrkja nemendur grunninn frá A1 og læra að tjá sig nákvæmar um daglegt líf sitt. Þeir læra að lýsa hlutum og tilgangi þeirra, ræða heilsu, matarvenjur og persónulega reynslu. Nemendur geta sagt frá lífsleið sinni, lýst einkennum veikinda, gefið og þegið ráð og tjáð skoðanir á mat og neysluvenjum. Á þessu stigi kynnast þeir einnig mikilvægum málfræðiatriðum A2-stigsins, meðal annars aukinni notkun passé composé, imparfait, tilvísunarfornafna og andlagsfornafna.
Taktu stöðuprófið: http://stoduprof.af.is
Námskeiðið fer fram í 45 mín tvisvar í hverri viku. 10 vikur af námskeiðum (15 klst.)
Kennsluefni
-
- Kennslubók: Défi actuel A2 lesbók og æfingabók
- Bækurnar eru ekki innifaldar.
- Défi actuel A2 er notuð fyrir allar þrjár annirnar sem tekur að klára A2.
- Hægt er að kaupa þær hjá okkur (lesbók: 5.000 kr. / æfingabók: 4.000 kr.)
- Skriffæri (staðnám)
- Kennslubók: Défi actuel A2 lesbók og æfingabók
Styrkir til náms og greiðslur
- Mundu að athuga með námsskeiðsstyrki hjá stéttarfélaginu þínu eða hjá Vinnumálastofnun.
- Hægt er að skipta greiðslunni í tvennt eða í þrennt á Abler.
Dagatal
Það er alveg mögulegt að greiða með millifærslu án gjalds. Í því tilviki vinsamlega sendið okkur tölvupóst (alliance@af.is) til að láta okkur vita.






