Sýning bíómyndarinnar „Trois couleurs : Rouge“ eftir Krzysztof Kieślowski með Irène Jacob, sunnudaginn 19. apríl 2026 kl. 19 í Bíó Paradís
Bíótekið sýnir allar þrjár myndirnar í hinum goðsagnakennda lita-þríleik Kieslowskis, Blár, Hvítur og Rauður.
Trois Couleurs: Rouge, er lokaverk og hápunktur þríleiksins þar sem örlög og tengsl ólíkra einstaklinga fléttast saman í hljóðlátri leit að samstöðu og bræðralagi. Myndin fylgir Valentine, svissneskri fyrirsætu, sem kynnist einangruðum dómara sem hlerar símtöl nágranna sinna. Úr verða samtöl sem opna spurningar um siðferði, tengsl og tilviljanirnar sem móta líf okkar. Rauður er hlý, heimspekileg og formfögur mynd sem dregur saman þemu þríleiksins. Hún setur bræðralag í forgrunn með því að kanna ósýnilegar tengingar milli fólks og þá samkennd sem myndast þrátt fyrir fjarlægð og ólík hlutskipti þess.
Myndin minnir á að samfélag byggist á sammannlegum þræði — skilningi, náð og þeirri skyldu að sjá aðra.
Kvikmyndir Kieslowski eru sýndar í samstarfi við Sendiráð Frakklands og Póllands á Íslandi.
Staðsetning og tímasetningar
-
-
📅 Dagsetningar: sunnudagur 19. apríl 2026 kl. 19
-
📍 Staðsetning: Bíó Paradís
-

