"Spjall við Tahar Ben Jelloun" / Rencontre avec Tahar Ben Jelloun"

Alliance francaise býður þér hér með á "Spjall við
Tahar Ben Jelloun" mánudagskvöldð 8. apríl kl. 20:30. Þar
mun marokkóski rithöfundurinn Tahar Ben Jelloun fjalla um eigin
verk og svara spurningum Friðriks Rafnssonar, en þýðing hans
á bók Ben Jelouns, Kynþáttafordómar, hvað er það pabbi?
er nýkomin út. Samtalið fer fram á frönsku en því verður
snarað á íslensku jafnharðan. Ennfremur mun höfundurinn
svara spurningum samkomugesta.Aðgangur er ókeypis og allir eru
velkomnir meðan húsrúm leyfir. Meðfylgjandi er viðhengi með
fréttatilkynningu og fróðleik um Tahar Ben Jelloun, sem er
einn merkasti höfundur franskrar tungu nú um stundir og ötull
baráttumaður
gegn misrétti og fordómum hverskonar.
L'Alliance française a le plaisir de vous inviter à une"
Rencontre avec Tahar Ben Jelloun" le lundi 08 avril à 20h30
dans les locaux de l'Alliance française Hringbraut 121 3 hæð.
L'écrivain marocain francophone de renommée internationale présentera
son oeuvre et répondra aux questions de F. Rafnsson. L'entretien
sera mené en français et traduit en islandais .
Fridrik Rafnsson est le traducteur de l'un des derniers ouvrages
de Tahar Ben Jelloun paru récemment en Islande " Le racisme
expliquée à ma fille ".
Une conférence , traduite par Torfi Tulinius aura également
lieu dans le bâtiment principal de l'université dans le cadre
d'une collaboration avec l´Institut Vigdis Finnbogadottir des
Langues étrangères et l'Ambassade de France le mardi 9 avril à
17 heures sur le thème des différences culturelles entre le
monde arabe et le monde occidental.
Plus d'informations sur l'auteur
http://www.refer.org/maroc_ct/tur/littera/tahar1.htm
FRÉTTATILKYNNING
Marokkóski rithöfundurinn Tahar Ben Jelloun, einn þekktasti höfundur
hins frönskumælandi heims, í Alliance française
Mánudaginn 8. apríl næstkomandi fjallar Tahar Ben Jelloun um höfundarverk
sitt fyrr og nú undir yfirskriftinni Spjall við Tahar Ben
Jelloun. Þar ræðir höfundurinn um verk sín og svarar
spurningum Friðriks Rafnssonar, en íslensk þýðing hans á bókinni
Kynþáttafordómar - hvað er það pabbi? er nýkomin
út hjá Máli og menningu.
Tahar Ben Jelloun er fæddur og uppalinn í Marokkó, en hann
hefur búið í Frakklandi undanfarin þrjátíu ár og skrifar
á frönsku þótt móðurmál hans sé arabíska. Hann hefur nú
sent frá sér tíu skáldsögur, nokkrar ljóðabækur, bækur
af sjálfsævisögulegum toga, ritgerðir, viðtalsbækur og
greinasöfn. Auk þess hefur hann um árabil skrifað greinar og
pistla í franska stórblaðið Le Monde. Tvær bóka hans hafa
öðrum fremur náð almenningshylli. Þær eru skáldsagan Heilög
nótt (1987), sem færði honum hin virtu frönsku Goncourtverðlaun,
fyrstum arabískra höfunda, og samtalsbók sem nýkomin er út
á íslensku Kynþáttafordómar, hvað er það pabbi? (1998),
en báðar þessar bækur hafa orðið metsölubækur víða um
heim. Sú síðanefnda er nú komin út á tæplega þrjátíu þjóðtungum
og þykir taka einkar nærfærnislega á viðkvæmu málefni. Nýjasta
bók hans nefnist Islamstrú skýrð fyrir börnum,
en hún kom út í janúarmánuði s.l..
Hann hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar, var til dæmis
útnefndur velgjörðarsendiherra hjá UNESCO í fyrra, á sama tíma
og Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands, auk þess
sem hann hefur nokkrum sinnum verið orðaður við Nóbelsverðlaunin
í bókmenntum.
Tahar Ben Jelloun ræðir verk sín í húsakynnum Alliance française,
Hringbraut 121, 3hæð, klukkan 20:30 mánudaginn 8. apríl.
Rabbið fer fram á frönsku, en verður túlkað á íslensku.
Daginn eftir, þriðjudaginn 9. apríl klkukkan 17:15 verður
hann með fyrirlestur í hátíðarsal H.Í. undir yfirskriftinni
Menningarheimur Vesturlanda og Araba í boði
Heimspekideildar Háskóla Íslands og Stofnunar Vigdísar
Finnbogadóttur í erlendum tungumálum. Hann flytur erindið á
frönsku og það verður túlkað jafnóðum á íslensku.
Aðgangur er ókeypis og öllum opinn meðan húsrúm leyfir.
Tahar Ben Jelloun kemur hingað í boði Sendiráðs Frakklands
á Íslandi og Máls og menningar, og heldur fyrirlestrana í
samstarfi við Alliance française, Heimspekideild Háskóla Íslands
og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum.
Allar nánari upplýsingar veitir Friðrik Rafnsson (s. 5525605;
GSM 8995604) og Alliance française, s. 5523870. Þeir fjölmiðlar
sem óska eftir viðtali við höfundinn eru beðnir að hafa
samband sem fyrst, en hann verður aðeins til viðtals fyrripart
á mánudag.
Meðfylgjandi er ljósmynd af höfundinum, en AF getur útvegað
greinar um hann á íslensku og ensku.
L'Alliance française a le plaisir de vous inviter à une"
Rencontre avec Tahar Ben Jelloun" le lundi 08 avril à 20h30
dans les locaux de l'Alliance française Hringbraut 121 3 hæð.
L'écrivain marocain francophone de renommée internationale présentera
son oeuvre et répondra aux questions de F. Rafnsson. L'entretien
sera mené en français et traduit en islandais .
Fridrik Rafnsson est le traducteur de l'un des derniers ouvrages
de Tahar Ben Jelloun paru récemment en Islande " Le racisme
expliquée à ma fille ".
Une conférence , traduite par Torfi Tulinius aura également
lieu dans le bâtiment principal de l'université dans le cadre
d'une collaboration avec l´Institut Vigdis Finnbogadottir des
Langues étrangères et l'Ambassade de France le mardi 9 avril à
17 heures sur le thème des différences culturelles entre le
monde arabe et le monde occidental.