|
Umræður með Jacques Perrin.
Í tilefni af frumsýningu Frönsku náttúrulífsmyndarinnar „Heimur
farfuglanna“ á frönsku kvikmyndahátíðinni næstkomandi föstudag, efna Alliance française og Fuglavernd til málþings um myndina í húsakynnum Alliance française að Tryggvagötu 8 laugardaginn 24. janúar klukkan 15:00. Þar sitja fyrir svörum hinn kunni franski leikstjóri og framleiðandi Jacques Perrin og Mark Cremades dýrafræðingur og sérfræðingur við gerð myndarinnar ásamt Einari Ó. Þorleifssyni náttúrufræðingi, sem vann við gerð myndarinnar á Ísandi. Philippe Pattey framkvæmdastjóri ferðaskrifstofunnar Fjallabak tekur þátt í umræðunum og túlkar af frönsku yfir á Íslensku
Rætt verður um tilurð myndarinnar, fuglana, flugmyndirnar, viðfangsefnið og gildi náttúrulífsmynda í nútímanum. Myndin Heimur farfuglanna var tekin víða um heim og að töluverðu leyti á Íslandi. Hún hefur hlotið mjög góða dóma og verið sýnd við mikla aðsókn í bíóum um allan heim. Franska kvikmyndafyrirtækið Galateé films sem stóð að gerð myndarinnar, þekkja margir af hinni frábæru mynd Microcosmos. Í tilefni frumsýningar myndarinnar og frönsku kvikmyndahátíðarinnar verða Alliance française og Fuglavernd – BirdLife Iceland með sýningu á frábærum fuglaljósmyndum Jóhanns Óla Hilmarssonar í anddyri Háskólabíós ásamt kynningarefni um félögin.
Rencontre / discussion avec Jacques Perrin
L’ Alliance organise en collaboration avec la Ligue islandaise de protection des oiseaux dans le cadre du Festival du film français 2004 une rencontre / discussion avec Jacques Perrin producteur et réalisateur du film
le Peuple migrateur le samedi 24 janvier à 15 heures dans les locaux de l’Alliance française situés à Tryggvagata 8
Participeront également à cette rencontre traduite et animée par M. Philippe Pattey directeur de la société 66°Nord M. Marc Crémadès (responsable scientifique lors du tournage du peuple migrateur )et Einar Ó. Þorleifsson naturaliste ( ayant également participé au tournage du film en Islande.
|