"Amis-amies" (Viltu vera memm?) - lestur á íslensku frá kl. 14:00
Boðið verður upp á skemmtilega og fjölþjóðlega fjölskyldudagskrá í
Hafnarhúsinu í tengslum við sýninguna Tomi Ungerer ? Teikningar og veggspjöld
næstkomandi laugardag.
Tomi Ungerer er heimskunnur teiknari og rithöfundur sem hefur gefið út yfir
140 bækur sem hafa verið þýddar á yfir 30 tungumál. Engin bóka hans hefur verið
gefin út á íslensku enn sem komið er.
Stór hluti útgefinna bóka Tomi Ungerer eru barnabækur, þar á meðal er
"Amis-amies". Bókin segir sögu tveggja barna af erlendum uppruna sem verða vinir
og átta sig á að þau eiga það sameiginlegt að þau eiga ímyndaða vini. Það er
Sólveig Simha sem les söguna í íslenskri þýðingu Hlöðvers Ellertssonar og
Sólveigar Simha. Áður en lesturinn hefst, verður örkynning á franskri tungu, og
eftir lesturinn gefst börnunum kostur á fara í smiðju og teikna myndir í
tengslum við söguna. Dagskráin hefst klukkan 14:00 með upplestri úr bók Tomi
Ungerer Amis-amies, sem á íslensku mætti þýða sem Viltu vera memm?
Til að auka enn á ánægjuna af sýningunni, býður Alliance Française ykkur að
kynna ykkur 17 bækur Tomi Ungerer, sem bókasafnið hefur nýlega eignast. Þessar
bækur geta félagsmenn fengið að láni í eina viku.
Árshátíð Alliance Française í Reykjavík 28. maí kl. 19:30
Tilkynnið þátttöku ykkar sem allra fyrst með því að
senda tölvupóst á
alliance@af.is
eða hringið í okkur í síma 552 3870 frá kl. 14-18.
Verð á
mann:
Félagar Alliance Française, nemendur og frönskukennarar:
3.900 kr.
Aðrir: 4.800 kr.
(½ vínflaska innifalin). Viðbótarvínflaska kostar 1.800 kr.
******
28. maí, kl. 14:00 og kl. 17:00, Tjanarbíó : Rebbasaga
skugga- og brúðuleikhúsið Petit Miroir flytur.
Rebbasaga er byggð á einu af grunvallarritum
franskra bókmennta, Le roman de Renart. Hún fjallar um úlfinn Ysengrain og
fjölskyldu hans í glímu þeirra við refinn í heillandi sýningu þar sem leikið er
með skugga og brúður. Frá því að sýningin var frumsýnd árið 1993 hefur hún
ferðast til meira en fjörutíu landa. Stórskemmtileg sýning fyrir alla
fjölskylduna.
Vigdís Gunnarsdóttir og Þór Tulinius ljá rebba og félögum
raddir sínar í sýningunni.
Samstarfsaðilar eru Listahátíð í Reykjavík og franska
sendiráðið.
******
25. maí, kl. 20:00, Kvöldstund með Michel Houellebecq í Norræna húsinu.
Michel Houellebecq er vinsælasti en jafnframt umdeildasti rithöfundur
Frakka, bæði í Frakklandi og um heim allan, en bækur hans hafa verið þýddar á um
40 tungumál. Hann er afar fjölhæfur höfundur, hefur sent frá sér
skáldsögur, ljóð og ritgerðir. Hann hefur auk þess gefið út diska þar sem hann
flytur ljóð við undirleik hljómsveitar, gert kvikmyndir og unnið með ýmsum
listamönnum og hugsuðum, svo sem rokkaranum Iggy Pop, myndlistarmanninum Tomi
Ungerer og heimspekingnum Bernard-Henry Lévy. Houellebecq hlaut virtustu
bókmenntaverðlaun Frakka, Prix Goncourt 2010, fyrir skáldsöguna Kortið og
landsvæðið.
Michel Houellebecq ræðir um verk sín við Friðrik Rafnsson, þýðanda, og
Oddnýju Eir Ævarsdóttur, heimspeking og rithöfund, og svarar spurningum
lesenda.
Tomi Ungerer er heimsþekktur höfundur, teiknari og myndskreytir. Hann er
annálaður fyrir myndskreytingar sínar á barnabókum, pólitískar skopmyndir hans
eru þekktar um allan heim, rétt eins og auglýsingar sem hann hefur gert, og
erótískar teikningar sem gleðja augað. Stórmerkileg sýning á verkum eins
merkasta listamanns Evrópu sem fagnar áttræðisafmæli sínu í ár.
sans titre, 1970
sans titre, vers 1970
Í samvinnu við Sendiráð Frakklands, Sendiráð Þýskalands, Tomi Ungerer safnið
í Strasbourg, Goethe Institut í Kaupmannahöfn, Listasafn Reykjavíkur og
Listahátíð í Reykjavík. Sýningin er styrkt af Menningarsjóði Frakklands og
Þýskalands.
Emilie Mariat er að ljúka doktorsnámi sínu í
félagslegri mannfræði við háskólann École des Hautes Études en Sciences Sociales
(EHESS), undir stjórn Aliette Geistdoerfer. Rannsókn hennar er á félagslegum og
fjárhagslegum afleiðingum á íslensk sjávarpláss sem stefna íslenskra stjórnvalda
í sjávarútvegsmálum hefur. Miðvikudaginn 4. maí kl. 20.00 kynnir hún helstu
niðurstöður rannsóknar sinnar.
Samhliða fyrirlestrinum, verður sett upp ljósmyndasýningin "Íslenskir
sjómenn - Fiskveiðar í nútíð og fortíð", í Alliance Française. Sýningin
verður opin frá 4. maí til 4. júní 2011
Þessi sýning er afrakstur tveggja vettvangsrannsókna í þjóðháttarfræðum, sem
voru farnar hingað til Íslands árin 2005 og 2006. Tilgangur rannsóknarinnar var
að kanna áhrif sjávarútvegsstefnu íslenskra stjórnvalda á sjávarplássin, þ.e.
fjárhagsleg, félagsleg og menningarleg áhrif. "Þessar myndir, sem eru teknar
á Vestfjörðum, og í vestur- og austurhluta landsins, sýna fiskveiðar í öllum
sínum fjölbreytileika, með mikilli áherslu á línuveiðar, sem komust aftur á
kortið í lok 9. áratugar síðustu aldar, og urðu sérstaklega vinsælar á
Vestfjörðum. Með þessari sýningu viljum við einnig sýna fjölda staðbundinna
úrræða, bæði samfélagslegra og einstaklingsbundinna, umsjón sjómanna með þeim
kvóta, sem skip þeirra fær úthlutað, en hann er höfuðstóll sem þarf að viðhalda,
gera arðsaman og varanlegan."
Viðburðurinn er skipulagður með stuðningi sendiráðs Frakklands á
Íslandi.
Belgía, Sviss, Kanada, Haítí, Marokkó, Senegal, Víetnam? Öll
þessi lönd eiga sér sameiginlega arfleifð : frönsku og sameiginleg
gildi.
Í marsmánuði ár hvert er haldin alþjóðleg vika franskrar tungu.
Tilgangurinn með henni er að minna á að franska er móðurmál 200 milljóna manna
um heim allan og sameina 870 milljónir íbúa og ríkisstjórna þeirra 70 landa sem
eru í Alþjóðasamtökum frönskumælandi landa (Organisation internationale de la
Francophonie). (http://www.20mars.francophonie.org/) Á
síðasta ári voru næstum 1200 viðburðir í 120 löndum um allan heim: ráðstefnur,
sýningar, tónleikar, leikir o.fl.
Alliance Française tekur þátt í þessum
alþjóðlega fagnaði og býður upp á viðburðaríka viku 19. ? 27. mars:
Laugardaginn 19. mars, Borgarbókasafnið,
Tryggvagata 15 Samkeppnin « Allons en France » klukkan 14:30.
Franska sendiráðið og Félag frönskukennara á Íslandi standa að
samkepninni « Allons en France » eða « Förum til Fakklands » fyrir
menntaskólanema á aldrinum 16 til 20 ára sem stunda frönskunám. Í fyrstu
verðlaun er tíu daga reisa til Frakklands þar sem íslenski sigurvegarinn fær
m.a. tækifæri til að hitta hina 130 vinningshafana, sem koma allsstaðar að úr
heiminum. Komið og hvetjið keppendur áfram þegar þeir tækla þemað «íþróttir og
franska».
Bókabúðin Eymundsson tekur einnig þátt í hátíð franskrar tungu
í samvinnu við sendiráð Frakklands, því franskar bókmenntir, tónlist og
kvikmyndir verða í sviðsljósinu á dögum hátíðarinnar. Missið heldur ekki af
veislu laugardagsins 19. mars; tónleikum með Jóni Þorsteini Reynissyni sem
leikur listir sínar á harmonikku.
17:00 Harmonikkuleikur Jóns Þorsteins Reynissonar
-------------------------------------------------------------------------------- Frá
21. Mars til 11. apríl 2011 - Alliance Française, Tryggvagata 8 og
Borgarbókasafnið, Tryggvagata 15
Þú ert að gleyma hestinum þínum,
Sýning á teikningum Suzanne Arhex.
Suzanne Arhex er ungur franskur myndskreytir og myndlistarnemi
í Listaháskóla Íslands. Sýningin samanstendur af 14 teikningum sem eru
myndskreyting við söngtexta Charles Trénet, ?Þú ert að gleyma hestinum þínum?
(«Vous oubliez votre cheval»).
-------------------------------------------------------------------------------- Sunnudaginn
20. mars, kl. 15 - Borgarbókasafnið, Tryggvagata 15. Teiknistofa með Suzanne Arhex. Le net de
Suzette
Myndskreyttu franskan söngtexta
Suzanne Arhex og Sólveigu
Simha, biðja börnin um að setja franskan söngtexta í myndir. Hvert barn dregur
sér línu úr frönskum söngtexta, sem það setur í teikningu, án þess að vita
hvernig hin börnin teikna aðrar línur söngtextans. Í lokin eru teikningarnar
settar saman, og þá fyrst sjá börnin heildarmyndina. Hámark 12 börn. Það er
ekki nauðsynlegt að skilja frönsku til að taka þátt, söngtextinn verður þýddur á
íslensku. Samvinnuverkefni Alliance Française, Sendiráðs Frakklands á Íslandi
og Borgarbókasafns Reykjavíkur.
------------------------------------------------------ Háskóli
Íslands - 22. til 24. mars,
Þú þekkir slagorð Alliance Française í Reykjavík Franska er málið.
Samt er mikilvægt að spyrja sig Af hverju ætti ég að læra frönsku núna?
og velta mismunandi svörum fyrir sér. Þess vegna efna Alliance Française og
frönskudeild Hugvísindasviðs Háskóla Íslands til hringborðsumræðna miðvikudaginn
23. mars frá kl. 15.00-17.00. Stúdentum, menntaskólanemum og öllum sem hafa
áhuga á þessari spurningu er boðið til umræðna við 5 einstaklinga úr mismunandi
starfsgreinum, sem segja frá því hvernig franska nýtist þeim í starfi og
mögulegri þörf á frönskukunnáttu...
Þau eru:
- Silja Bára Ómarsdóttir, aðjúnkt í stjórnmálafræði við Háskóla
Íslands. - Katrín Ólína, hönnuður. - Guðrún Vilmundardóttir,
útgáfustjóri hjá Bjarti. - Nína Björk Jónsdóttir, sendiráðsritari í
Utanríkisráðuneytinu. - Eiríkur Ingvar Ingvarsson, forstjóri Eden Mining
ehf.
Hvert þeirra segir í stuttu máli frá því hvernig franska nýtist
þeim í starfi sínu. Umræðurnar byggja á frásögnum þeirra.
Frú Vigdís
Finnbogadóttir veitir þann heiður að opna þessar hringborðsumræður.
------------------------------------------------------------------------------ Laugardaginn
19., mánudaginn 21., þriðjudaginn 22., miðvikudaginn 23., fimmtudaginn 24.
og sunnudaginn 27. mars : Umhverfis jörðina á frönskum
ævintýrum
Alliance Française hóf fyrir 2 árum að fara í grunnskóla
Reykjavíkur og á bókasöfnin til að kynna frönsku fyrir yngstu nemendum
borgarinnar. Í ár verður farin heimsferð á ævintýrum sem eru skrifuð á
frönsku.
Fyrsta stopp verður laugardaginn 19. mars í Bókasafni Kópavogs
kl. 15: Sólveig Simha les ævintýri frá frönskumælandi landi á íslensku og
frönsku.
Mánudaginn 21., þriðjudaginn 22. og fimmtudaginn 24., fá
nemendur Mealskóla, Austurbæjarskóla og Háteigsskóla að kynnast ævintýri frá
frönskumælandi landi með Sólveigu.
Miðvikudaginn 23. mars, les Sólveig
fyrir börn á Barnaspítala Hringsins og sunnudaginn 27. mars lýkur ferðinni í
Gerðubergssafni.
Allir velkomnir laugardaginn 19. mars í Bókasafn
Kópavogs og sunnudaginn 27. mars í Gerðubergssafn.
Félagsmenn Alliance Française greiða aðeins 600 kr. fyrir
miðann, sýnið gilt félagsskírteini í miðasölunni.
Það er Alliance Française og Bíó Paradís ánægja að tilkynna að mars er
Jacques Demy mánuð. 4 myndir verða sýndar:
4. - 6. mars : "Lola" (1960), 85 mín.
"Þetta er eins og Ítalía: eftir að hafa komið þangað einu sinni, langar
mann alltaf að fara þangað aftur.", Jean-Luc Godard.
Roland, ungur maður, sem á erfitt með að fóta sig í lífinu, hittir
kabarettdansarann Lolu og verður ásfanginn af henni. Hún ber hinsvegar þá von í
brjósti að barnsfaðir hennar, sem yfirgaf hana þegar hún var ólétt, snúi aftur.
Myndin er hylling til dans- og söngvamynda Hollywood en einnig til leikstjórans
Max Ophuls. Ótrúlega vel heppnuð frumraun, full af fegurð og eftirsjá. Með Anouk
Aimée.
11. - 13. mars : "Regnhlífarnar í Cherbourg" (1964), 91 mín,
Gullpálminn á Kvikmyndahátíðinni í Cannes
"Regnhlífarnar er bíómynd gegn stríði, gegn fjarveru, gegn öllu því
sem við þolum ekki og sem vinnur gegn hamingju." Jacques Demy.
Hin klassíska söngvamynd um unga elskendur sem ná ekki að eigast. Tónlist
Michel Legrand er sem sætasta hunang. Hlaut Óskarsverðlaunin sem besta erlenda
myndin á sínum tíma og gerði Catherine Deneuve að stjörnu.
"Mig langaði til að taka ástríðu í sundur og sýna gangverkið", Jacques
Demy. Jackie og Jean eru ung og ástfangin. Þau eru einnig langt leiddir
spilafíklar. Ástin blómstar í fyrstu og heppnin er með þeim í spilavítinu. En
hvað gerist þegar lukkan snýst gegn þeim og þau fara að tapa peningum? Með
Jeanne Moreau.
25. - 27. mars : "Stúlkurnar frá Rochefort" (1967), 120
mín.
"Að búa til glaðlega kvikmynd, þannig að áhorfandinn væri ekki eins leiður
þegar hann færi út af sýningu myndarinnar, og þegar hann kom inn í salinn."
Jacques Demy.
Tvíburasysturnar Delphine og Solange búa í hafnarbænum Rochefort þar sem þær
kenna dans og söng. Þær dreymir um að slá í gegn í tónlistarheiminum og finna
ástina í lífi sínu en átta sig ekki á að "hinir einu réttu" eru beint fyrir
framan nefið á þeim.
Þann 11. febrúar frá kl. 19-23 verður hin árlega Safnanótt, af því tilefni
sýnir Alliance Française sögu franskra kvikmynda á Íslandi. Við bjóðum ykkur að
ferðast aftur í tímann og fara yfir 100 ára sögu franskra kvikmynda á Íslandi.
Kvikmyndasafn Íslands gerði undanþágu fyrir Alliance Française og opnaði
skjalgeymsluna sína!
Alliance Française býður ykkur að enduruppgötva arfleifð franskra kvikmynda á
Íslandi, með sýningu á prógrömmum og plakötum franskra kvikmynda frá upphafi
kvikmyndasýninga á Íslandi. Missið ekki af þessu tækifæri til að sjá í fyrsta
sinn eða rifja upp tilvist þessara litlu fjársjóða, bæði þá sem eru svolítið
gamaldags og eins hina, sem eru ótrúlega nútímalegir.
Einstakt tækifæri til að endurupplifa eða uppgötva andrúmsloft horfinna
kvikmyndahúsa í Reykjavík.
Við þökkum Gunnþóru Halldórsdóttur, frá Kvikmyndasafni Íslands, kærlega
fyrir stuðninginn og aðstoðina.
Alliance Française í Reykjavík, Sendiráð Frakklands á Íslandi og Græna ljósið kynna
franska kvikmyndahátíð, sem verður haldin í 11. sinn dagana 21. janúar til 3.
febrúar í Háskólabíói og í Borgarbíói á Akureyri 12. til 16.
febrúar.
Líkt og á síðasta ári, byrjar Franska kvikmyndahátíðin með
brosi, en opnunarmynd hátíðarinnar "Bara húsmóðir" er í léttari kantinum
og skartar stórleikurunum Catherine Deneuve og Gérard Depardieu í aðalhlutverki.
Hefur þú séð Catherine Deneuve í slitnum jogging galla ? Eða Gérard Depardieu í
vinnugalla ? Ekki láta þetta tækifæri renna þér úr greipum !
Nokkur þemu
verða á hátíðinni að þessu sinni. Kvikmyndirnar "Velkomin", "Eins og hinir",
"Stúlkan í lestinni" og kanadíska kvikmyndin "Lífslöngun" taka á
málefnum minnihlutahópa, ýmist með gríni eða alvöru. "Leyndarmál" og
"Hvítar lygar" fjalla um ástir, lygar og margbreytileika mannlegra
samskipta.
"Skrifstofur Guðs" er mynd sem fjallar um félagsmál og
tilvonandi mæður með frumlegum hætti.
Ævintýrin eru allsráðandi þegar um
"Ævintýri Adèle Blanc-Sec" er að ræða en þessa nýjasta mynd leikstjórans
Luc Besson byggir á góðkunnum teiknimyndasögum eftir Jacques Tardi.
Að
lokum má nefna hina sögufrægu mynd "Lafmóður" frá 1960 eftir Jean-Luc
Godard þar sem franska nýbylgjan ræður ríkjum. Allar myndirnar eru með enskum
texta, nema "Hvítar lygar" og "Ævintýri Adèle Blanc-Sec" sem eru
með íslenskum texta.
Félagsmenn í Alliance Française (sýnið félagsskírteinið),
menntaskólanemar og háskólanemar fá 50% afslátt af miðaverði. Einnig er hægt
að kaupa miða á allar myndirnar á 6.000 kr í Háskólabíói.
Laugardaginn 11. desember kl. 19.30 Alliance Française,
Tryggvagötu 8
Nú er aðventan byrjuð og þá um leið tími jólahlaðborðanna.
Taktu strax frá kvöldið 11. desember fyrir Alliance Française, en þá verður
okkar árlega jólahlaðborð. Í ár bjóðum við upp á ekta íslenskt jólahlaðborð,
matreitt af kokkum Hafnarinnar, nýja veitingastaðnum við höfnina, sem var
opnaður fyrir nokkrum mánuðum: www.hofnin.is
Á matseðlinum er meðal annars: léttsöltuð bleikjurúlla, grafinn
lax, hreindýrapâté, hangikjöt, purusteik... sem öllu er rennt niður með frönsku
víni.
Pantaðu strax í síma 552 38 70 á milli kl. 14 og 18 eða með því
að senda okkur tölvupóst á alliance@af.is
Verð : 3.900 kr (½ flaska af víni innifalin) fyrir félagsmenn
Alliance Française og 4.400 kr fyrir aðra.
Greiðist um leið og pantað er á bankareikning Alliance
Française 0137-26-378, kt: 420169-1839.
Fimmtudaginn 2. desember, kl. 20.00,
Súkkulaðismökkun og konfektgerð, í Alliance
Française, Tryggvagötu 8.
Aðventan er rétti tíminn til að eiga notalega kvöldstund,
undirbúa jólin og ? smakka á súkkulaði.
Takið frá fimmtudagskvöldið 2. desember! Þá bjóðum við til
súkkulaði- og konfektsmökkunar. Það verður talað um mismunandi tegundir
súkkulaðis og hvernig hægt er að nota þær í konfektgerð. Þátttakendum verður
boðið að smakka mismunandi tegundir af súkkulaði og konfektmola, þeir fá
uppskriftir að konfektmolum, sem er upplagt að útbúa á aðventunni !
Það er Viggó Vigfússon, kokkalandsliðsmaður og
súkkulaðikonnessör, sem ætlar að kynna súkkulaði og konfektgerð fyrir okkur, en
hann er nýkominn heim frá Lúxemborg þar sem kokkalandsliðið fékk gullverðlaun
fyrir heita rétti, silfurverðlaun fyrir kalda rétti og lenti í 7. sæti á
heimslistanum.
Súkkulaðið sem er notað á námskeiðinu er hið franska Valrhona
súkkulaði,www.valrhona.com, en það fyrirtæki var stofnað árið 1922. Valrhona er
hráefni sem er viðurkennt og notað af bestu bökurum og súkkulaðigerðarmönnum og
þeir leggja mikið upp úr að nýta möguleika súkkulaðisins á sem fjölbreyttastan
hátt. Talað verður á íslensku og túlkað á frönsku, ef þörf er á.
Lengd námskeiðsins er um 1 klst. og 15 mín. Verð: 3.500 (kr.
2.800 fyrir félagsmenn Alliance Française) ATH. Takmarkaður fjöldi.
Skráning á námskeiðið á alliance@af.is eða í síma 552 3870. Einnig er
hægt að skrá sig á skrifstofu l'Alliance Française, Tryggvagötu 8.
ATH. Skráning verður að berast í síðasta lagi fyrir kl. 18
miðvikudaginn 1. des, þar sem Viggó þarf að fá að vita á miðvikudagskvöldið hve
ma rgir koma, til að hann geti útbúið konfekt til að smakka.
Staður : Borgarbókasafn Reykjavíkur,
Tryggvagötu 15 Hvenær: sunnudaginn 3. október kl. 15.00 Allir
velkomnir
Borgarbókasafn Reykjavíkur og Alliance Française bjóða á opnun
sýningar á myndskreytingum úr afrískum barnabókum á aðalsafni, sunnudaginn 3.
október kl. 15.
Myndirnar koma frá ólíkum löndum og landsvæðum í Afríku.
Þær eru bæði eftir útlærða og sjálflærða listamenn sem búa við mjög mismunandi
aðstæður til listköpunar. Þessar myndir bera vitni um fjölbreytileika í áhrifum
og tjáningarmáta og eru um leið dæmi um vel heppnað samspil munnlegrar og
skriflegrar sagnahefðar. Hér má sjá sögur sem byggja á langri hefð við hlið
samtímasagna, þetta eru bækur sem eru fullar af uppgötvunum og sögurnar eru
óendanlegur innblástur fyrir skapandi listamenn sem eru meðvitaðir um mikilvægi
afrískra bóka fyrir afrísk börn.
Við þetta tækifæri mun Solveig Simha segja söguna af héranum
Leuk (Leuk Le Livre) á íslensku og einnig verða sýndar skyggnumyndir úr bókinni.
Hérinn Leuk kemur víða við sögu í afrískum skólabókum og er því þekkt
sögupersóna í Afríku. Sagan sem Solveig segir fjallar um Leuk og allt það sem
hann lærir um lífið í samskiptum sínum við önnur dýr. Rithöfundarnir Leopold
Sedar Senghor og Abduoulaye Sadji frá Senegal notuðu þessa skemmtilegu persónu í
bókinni Hin ævintýralega saga af Héranum Leuk frá 1953, sem er safn vinsælla
sagna sem margar kynslóðir Afríkubúa þekkja, allt frá Senegal til Madagaskar.
Staður : Nýlistasafnið, Skúlagata 28, 101 Reykjavík
Alliance Française í Reykjavík tekur þátt í RIFF 2010 með því að bjóða upp á
úrval hreyfistuttmynda með stuðningi CulturesFrance.
Það er algengur misskilningur að hreyfimyndir séu eingöngu fyrir börn og að
við framleiðslu þeirra séu ekki notaðar nema örfáar tækniaðferðir. Það er
sko aldeilis ekki svo!
Dagskráin hér fyrir neðan inniheldur úrval mynda frá Alþjóðlegu
hreyfimyndahátíðinni í Annecy: http://www.annecy.org/. Þar er boðið upp á
yfirlit franskra hreyfimynda síðasta áratugar.
Þessar stuttmyndir, sem eru sumar framleiddar af nemendum í hreyfimyndagerð
og aðrar af fagaðilum, sýna hvað heimur hreyfimyndanna er margsluninn og
lifandi. Á þeim 90 mínútum sem sýning myndanna á dagskránni tekur, eru tekin
fyrir alvarleg málefni, t.d. seinni heimsstyrjöldin, átökin fyrir botni
Miðjarðarhafs... en það er líka slegið á léttari strengi, t.d. fjallað um
ástina.
Allar myndirnar eru franskar, með tveimur undantekningum : ein myndanna er
ísraelsk og önnur indversk.
Gagnvirk sýning fyrir yngstu börnin, um flokkun og endurvinnslu
sorps á Vísindavöku 2010.
klukkan 17:30, 18:30 og 20:00
Sýningin "Hey, ekki menga svona !" er bæði á íslensku og frönsku og er 45
mínútur að lengd. Aðalpersónan kallast Papolu en markmið hans er að fræða börnin
um skaðleg áhrif sorps í náttúrunni og kenna þeim hvernig gefa má ruslinu annað
líf með endurvinnslu. Hann sameinar brúðusýningar, söng, hringdans, leiki,
fræðslu og föndur úr ónýtu dóti og vekur börnin þannig til umhugsunar um hvað sé
best að gera við ruslið.
Vísindavaka 2010 verður haldin
föstudaginn 24. september í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu kl.
17:00-22:00. Sýningin "Hey, ekki menga svona !" verður endurtekin þrisvar sinnum
klukkan 17:30, 18:30 og 20:00. Sýningin er í samvinnu Alliance Française í
Reykjavík, Sendiráðs Frakklands á Íslandi og RANNÍS.
Dagur tileinkaður Charcot - Anne-Marie Vallin-Charcot flytur fyrirlestur: "Daglegt líf í
heimskautaleiðangri: ferð Pourquoi-Pas ? til Suðurskautsins á árunum
1908-1910", á frönsku og túlkað á íslensku
Staður: Alliance Française, Tryggvagötu 8. Fimmtudaginn 16.
september, kl. 20. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir meðan húsrúm
leyfir.
Þann 16. september 1936 strandaði rannsóknarskipið Pourquoi Pas ? á
skerinu Hnokka í Borgarfirði og með því fórst franski heimskautafarinn og
leiðangursstjórinn Jean Baptiste Charcot ásamt allri áhöfn utan einum. Til
minningar um þennan atburð sem skók mjög íslensku þjóðina hafa Alliance
Française í Reykjavik og Háskóli Íslands undanfarin ár boðið upp á erindi þann
16.september þar sem sögulegt og vísindalegt gildi þessara leiðangra fyrr og nú
eru reifuð.
Í ár er það dótturdóttir Charcots, Anne-Marie Charcot sem flyturerindi um
daglegt líf í heimskautaleiðöngrum við upphaf 20.aldarinnar. Hún fjallar
einkum um ferð Pourquoi-Pas ? til Suðurskautsins á árunum 1908-1910, en
í ár er öld liðin frá því leiðangursmenn sneru aftur úr þeirri árangursríku
háskaför og var fagnað sem þjóðhetjum þegar þeir sneru aftur til Rouen í
Normandíhéraði. Í erindinu sýnir frú Charcot áður óbirtar myndir og gögn sem
eru í eigu fjölskyldunnar.
Í samvinnu við Jörund Svavarsson, prófessor í sjávarlíffræði í Háskóla
Íslands og formann stjórnar Háskólaseturs Suðurnesja.