Skólinn Bókasafnið Dagskrá Tenglar Um Alliance á Íslensku en Français

ágúst 2008

“Undir Parísarhimni”: frönsk sönglög, ljóðalestur og dansiball

- Alliance francaise býður upp á fjölbreytta dagskrá í Iðnó á Menningarnótt.



Klukkan 18:00 byrjar leik- og söngkona frá París, Adeline Moreau, að flytja ástleitna og kankvísa dagskrá. Hún flytur eingöngu frumsamið efni og leikur á ýmis hljóðfæri. Tónlist hennar og textar minna á litlar sögur eða leikþætti, sem ýmist eru fyndin eða hugljúf. Andinn í verkum hennar minnir einna helst á Emilie Simon eða Yann Tiersen, höfund tónlistarinnar í kvikmyndinni Amélie sem sló í gegn fyrir nokkrum árum. Herrerasystur leika með henni á selló og hörpu. Töfrandi flutningur sem hefur okkur upp fyrir þökin í París!

Kl. 19:00 geta þeir sem vilja fengið sér vínglas í hönd og hlustað á ljóðrænan spuna leikkonunnar Sólveigar Simha og hörpuleikarans Marion Herrera í kringum viðfangsefnið ölvun. Hrífandi og ölvandi þar sem farið er á klukkustundar langt flug með höfuðskáldum Frakka og Íslendinga sem kunna að blanda saman ást og munúð í hæfilegum skömmtum. Sannkölluð ljóðræn óvissuferð með þeim Serge Gainsbourg, Sigurbjörgu Þrastadóttur, Arthur Rimbaud og fleirum!

Og það er stutt úr ölvun í dans. Klukkan 20:00 upphefst hefðbundið franskt hamónikkudansiball eins og þau gerðust best á fyrri hluta síðustu aldar. Þar syngur Hlín Pétursdóttir Behrens, óperusöngkonan hrífandi, frönsk lög við undirleik harmonikkuleikarans Yuri Fedorov.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Með stuðningi franska sendiráðsins.


júní 2008

Stefna Frakklands í alþjóðlegum öryggismálum

Francois Heisbourg frá International Institute for Strategic Studies og Geneva Centre for Security Policy heldur erindi á vegum utanríkisráðuneytisins og Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands

Fimmtudaginn 12. júní kl. 17:00 í Háskólatorgi 101

Á fimmtudag, 12. júní heldur prófessor Francois Heisbourg heldur erindi á vegum utanríkisráðuneytisins og Alþjóðamálastofnunar um öryggisstefnu Frakklands. Á síðustu árum hefur mikil gerjun orðið í öryggis- og varnarmálum Evrópu. Evrópusambandið hefur í auknum mæli gert sig gildandi í þeim málaflokki með samþykkt og framkvæmd evrópsku öryggis- og varnarmálastefnunnar. Lissabon-samningurinn endurspeglar glögglega ásetning Evrópusambandsins um að vera virkari þátttakandi í alþjóðlegum öryggismálum.

Frakkland er eitt þeirra ríkja sem haft hefur forystu um að auka hlut Evrópusambandsins um leið og ríkið hefur tekið virkan þátt í aðgerðum Atlantshafsbandalagsins. Til marks um aukinn metnað Frakka er nú til skoðunar að þeir taki á nýjan leik sæti í herstjórn NATO en Frakkland hefur staðið utan þess starfs síðan í lok sjöunda áratugarins. Í sumar taka Frakkar við formennsku í ráðherraráði ESB og á næstunni er væntanleg hvítbók franskra stjórnvalda um öryggis- og varnarmál. Í henni verður lögð fram sýn Frakklands á þær ógnir og hættur sem kunna að steðja að Evrópu og hvernig brugðist skuli við þeim.

Í erindi sínu mun Prófessor Heisbourg ræða stefnu Frakklands í öryggis- og varnarmálum og fjalla um spurningar á borð við hvaða ógnir steðja að Evrópuríkjum í upphafi 21. aldar? Hver er sýn Frakklands á framtíðarhlutverk NATO? Hvert á samstarf ESB og NATO að vera í öryggis- og varnarmálum? Hvernig má styrkja samstarf Evrópu og Bandaríkjanna? Hver er sýn Frakka á framtíðarþróun á norðurslóðum?

Prófessor Heisbourg hefur víðtæka reynslu á sviði öryggismála og tekið virkan þátt í mótun franskrar örygisstefnu síðasta aldarfjórðung. Hann hefur m.a. kennt við Sciences-Po í París og veitt forstöðu rannsóknastofnun um öryggismál í Frakklandi. Hann hefur verið formaður Geneva Centre for Security Policy frá því 1998 og formaður ráðs IISS frá því 2001.

Erindið verður haldið á ensku. Aðgangur ókeypis og öllum opinn.

Sjá einnig á http://www.hi.is/ams


maí 2008

Aðalfundur 2008

Aðalfundur Alliance française, sá 97. í sögu félagsins, var haldinn í húsakynnum félagsins, Tryggvagötu 8 í Reykjavík, laugardaginn 31. maí. Á fundinum var farið yfir starfsemi félagsins og því kosin stjórn. Stjórnin var að mestu endurkosin, Friðrik Rafnsson var endurkosinn forseti og aðrir stjórnarmenn sem sitja áfram eru þau Bruno Lebas, Eve Leplat, Guðlaug Matthildur Jakobsdóttir, Guðjón Ármann Eyjólfsson, Marlène Perrier og Philippe Blanc. Einn stjórnarmaður gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu og var Sigríður Snævarr kosin í stjórnina í hans stað.
Starfsemi Alliance française var blómleg á síðasta starfsári, félagið skipulagði á annan tug viðburða eitt sér eða í samstarfi við ýmsa aðila, ss, franskt hamóníkkuball, kvikmyndahátíð, tónleika, fyrirlestra, menningarnámskeið, leiksýningar og fleiri viðburði sem voru afar vel sóttir. Ennfremur var bryddað upp á ýmsum nýjungum í frönskukennslu bæði fyrir börn og fullorðna.

Breytingar á dagskrá helgaðri maí 1968

Af óviðráðanlegum ástæðum verður fyrirlestri franska blaðamannsins Eric Aeschimann aflýst. Í hans stað mun Viðar Þorsteinsson fjalla um og meta mikilvægi „arfleifðar 68” út frá heimspekilegu og pólitísku sjónarmiði. Hann mun einkum styðjast við ritgerð sem Alain Badiou skrifaði sem andsvar við umdeildum athugasemdum forseta Frakklands um maí 68.
Viðar Þorsteinsson er með MA-próf í heimspeki frá Warwick University og starfar sem blaðamaður. Hann er stjórnarformaður Nýhils og ritstjóri www.kistan.is, en hefur auk þess tekið þátt í ráðstefnum og aðgerðum á sviði stjórnmála víða um heim.
Fyrirlesturinn verður á íslensku með stuttum samantektum á frönsku. Að fyrirlestrinum loknum verða umræður með þátttöku manna og kvenna sem sum hver urðu sjálf vitni að atburðunum, Sigurðar Pálssonar, Gérard Lemarquis og Dominique Plédel. Umræðunum stýra Torfi Tulinius og Friðrik Rafnsson.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir. Dagskráin er skipulögð í samstarfi við Sendiráð Frakklands á Íslandi og fer fram í húsakynnum Alliance Française, Tryggvagötu 8, miðvikudaginn 28. maí kl. 20:00.

Árshátíð Alliance Française

Árshátíð Alliance Française verður haldin laugardaginn 17 maí n.k. og hefst kl. 20. Hún verður haldin með hefðbundnu sniði í húsakynnym AF þar sem meðlimum og velunnurum félagsins gefst færi á að eiga saman notalegt kvöld og njóta úrvals veitinga í föstu og fljótandi formi, en nú eins og undanfarin ár er matreiðslan í höndum listakokksins François Fons.
Verð á mann :
fyrir félaga og nemendur A.F. : 4 200kr
Ekki félagar A.F. : 5 300kr
+ 1/2 vínflaska er í boði franska sendiráðsins
Pöntun með email fyrir 14 Mai: alliance@af.is

List mót byggingalist

Halldór Björn Runólfsson, safnstjóri Listasafns Íslands, heldur fyrirlestur um samband listar og byggingalistar í Alliance française, Tryggvagötu 8 miðvikudaginn 21. maí kl. 20:30. Erindið verður flutt á íslensku, en með samantektum á frönsku. List og byggingalist hafa löngum átt erfiða sambúð og illa skilið kröfur hvorrar annarrar um óskoraða athygli og áhrifastöðu, hvað varðar rými, tíma og mikilvægi. Oftast hefur listin verið í veikari stöðu sökum þess að byggingalistin umvefur hana, veitir henni skjól og finnur henni stað. Það þýðir ekki að listin sætti sig skilyrðislaust við stöðu sína heldur heimtar hún eins hlutlaust umhverfi sér til handa og frekast er unnt, sem táknar umgjörð óháða umlykjandi byggingu.

Samt sem áður halda söfn teiknuð af arkitektum áfram að rísa og brýna listamenn til að halda sínu gagnvart ásókn umhverfisins. Í þessari togstreitu er listamaðurinn eins og einstaklingur, sem rís gegn óskoruðu yfirvaldi, í hvaða formi sem er, í von um að bjóða því dús, eða að minnsta kosti benda á aðra möguleika í stöðunni.

Þannig mun erindinu fylgja ágrip um hugmyndir Sant’Elia og fútúríska byggingalist hans, Nýju Babýlon hollenska listmálarans Constants, hugmyndir landa hans, sagnfræðingsins og menningarfræðingsins Johans Huizinga um hinn leikandi mann, homo ludens, gagnhönnunarstofurnar Archigram og Archizoom á 7. og 8. áratugnum og klefa Louise Bourgeois.

Námskeið - Lærðu að þekkja sumarilmvötnin

Alliance française og Forval standa nú í maí fyrir ilmvatnsnámskeiði sem ber yfirskriftina "Lærðu að þekkja sumarilmvötnin". Þetta er annað ilmvatnsnámskeiðið af þessu tagi sem Forval og Alliance francaise skipuleggja saman, og nú er áherslan lögð að að kenna fólki að meta og velja þau ilmvötn sem henta á þeim árstíma sem nú fer í hönd.
Á námskeiðinu læra þátttakendur að þekkja ilm af blómum, ávöxtum, trjákvoðu og þróa lyktarskyn sitt, skoða samsetningu sumarilvatnanna og fá tilfinningu fyrir þeim með því að handleika þau.
Kennari er Guðrún Edda Haraldsdóttir, sérfræðingur hjá Forvali, en hún kenndi á námskeiðinu "Undraveröld franskra ilmvatna" sem haldið var í nóvember fyrir fullu húsi áhugasamra þátttakenda.
Námskeiðið verður haldið á miðvikudag 14 Maí frá kl. 19 til 21 í húsakynnum Alliance francaise, Tryggvagötu 8.
Verð: 3900 kr.
Skráning fer fram í síma 5523870 og á vef Alliance française, af.is, skráningarfrestur er til 13 Maí.


apríl 2008

Ljósmyndasýning "Litli".

Litli, brúða sem fannst á háalofti í nágrenni Lyon ferðaðist um Íslands árið 2004 ásamt ljósmyndaranum Séverine Thévenet.

Sendiráð Frakklands á Íslandi og Borgarbókasafnið bjóða alla velkomna að koma og taka þátt í upplifun Litla með Séverine Thévenet á opnun ljósmyndasýningarinnar Litli föstudaginn 25. apríl næstkomandi kl. 17:00 á Borgarbókasafninu. Ljósmyndasýningin er í anddyri Bókasafnsins og stendur yfir til 1. júní 2008.

Séverine Thévenet verður með dagskrá fyrir börn í Borgarbókasafninu sunnudaginn 27. apríl kl. 15:00 þar sem þau fá tækifæri til að tjá sögu Litla í orðum út frá ljósmyndunum. Hún mun einnig heimsækja nokkra skóla sem og Alliance française.

http://ousontlesenfantshautetfort.com/album/litli_soliquietude/
Heimasíða Séverine Thévenet: www.1-visible.com

Námskeið í vínsmökkun.

Listin að smakka vín í umsjá Dominique Plédel, skólastjóra Vínskólans í Reykjavík.
Við tölum oft um vínþrúgur, vínhéruð, eik - en hvernig er best að smakka vín? Er nauðsynlegt að vera sérfræðingur til að læra vínsmökkun? Hvaða eiginleikar víns líkar okkur og hvaða eiginleikar geðjast okkur ekki - og af hverju?
Vínsmökkun er ánægja sælkerans en Dominique Plédel mun deila þessari ánægju með þátttakendum námskeiðsins og leiða þá inn leyndardóma vínsins. Því næst mun hún beina athyglinni að Bordeaux héraðinu sem er viðmið í vínumræðu um heim allan.
Námskeiðið fer fram á íslensku og er í tvo daga, frá kl. 19:00 til 21:00 þriðjudaginn 15. apríl og miðvikudaginn 16. apríl í Alliance française í Reykjavík, Tryggvagötu 8.
Verð: 6.900 kr.


mars 2008

Viku franskrar tungu

Sendiráði Frakklands á Íslandi, sendiráði Kanada á Íslandi og Alliance Française er það mikil ánægja að tilkynna um dagskrá í Reykjavík í tilefni af hátíð franskrar tungu. Frá árinu 1990 hafa frönskumælandi íbúar í öllum heimsálfum haldið 20. mars hátíðlegan sem alþjóðlegan dag franskrar tungu. Dagurinn sameinar 200 milljónir frönskumælandi fólks og meira en 800 milljónir íbúa í þeim 68 löndum sem erum meðlimir í Alþjóðasamtökum frönskumælandi fólks (l’Organisation Internationale de la francophonie).
Í Reykjavík bjóðum við ykkur upp á fjölbreytta dagskrá vikuna 22.-29. mars: ýmsa menningarviðburði og fyrirlestra um stöðu frönskunnar í heiminum nú og franskt þjóðfélag. Íslendingar, Frakkar og frönskumælandi Kanadabúar eiga það sameiginlegt að vera annt um móðurmál sitt. Við vonum að vika franskrar tungu í Reykjavík verði tækifæri til að sameinast um þessi sameiginlegu gildi. Dagskrá (pdf)



Alliance française í Reykjavík hefur ákveðið að víkka út þjónustu við meðlimi félagsins og bjóða þeim upp á þann möguleika að leigja stóra veislusalinn sinn (160m2), á sunnudögum milli kl. 10:00 og 22:00.
Salurinn hentar vel til ýmissa nota, ss. til að halda fermingarveislur og einkasamkvæmi af ýmsu tagi að degi til. Leigan fyrir salinn er 40.000 kr.; taka þarf salinn frá að minnsta kosti 10 dögum áður en ráðgert er að halda veisluna og gera um það skriflegan samning.
Frekari upplýsingar eru veittar í s. 552 3870 alla virka daga á milli kl. 16:00 og 19:00.

Í bíó: le Scaphandre et le Papillon


Alliance française og Sendiráð Frakklands fagna því að Græna ljósið hafi tekið til sýninga frönsku myndina "Le Scaphandre et le Papillon" eftir leikstjórann Julien Schnabel. Myndin hefur hvarvetna hlotið fábærar viðtökur, til dæmis fékk hún verðlaun fyrir bestu leikstjórn í Cannes og leikarinn, Mathieu Amalric, fékk verðlaun fyrir bestan leik í aðalhlutverki á frönsku César hátíðinni. Einnig var myndin tilnefnd til þriggja verðlauna á Óskarsverðlaunahátíðinni (fyrir bestu ljósmyndatökuna, besta leikstjórann og bestu aðlögun bókar yfir í kvikmyndaform) sem haldiln var nýverið. Meðlimir Alliance française fá bíómiðann à 400 krónur gegn framvísun meðlimaskírteinis Sýningar í Regnboganum: þriðjudaginn 11 mars, miðvikudaginn 12 mars og fimmtudaginn 13 mars kl. 17:40, 20:00 Nánari upplýsingar : http://graenaljosid.is/titlar/i-bio/nr/141


Miðvikudaginn 5. mars kl. 20:30 stendur Alliance francaise fyrir dagskrá til minningar um franska rithöfundinn og kvikmyndagerðarmanninn Alain Robbe-Grillet, einn merkasta rithöfund 20. aldarinnar, en hann lést 18. febrúar síðastliðinn.

Þar fjalla Thor Vilhjálmsson rithöfundur og Torfi Túlinius prófessor við HÍ um Alain Robbe-Grillet og segja frá persónulegum kynnum sínum af honum, en hann kom m.a. nokkrum sinnum til Íslands. Auk þess verður sýndur hluti heimildamyndar um Alain Robbe-Grillet sem kvikmyndagerðarmaðurinn Ari Alexander vinnur að um þessar mundir.

Dagskráin verður haldin í Alliance francaise Tryggvagötu 8. Hún fer fram á frönsku og íslensku, allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.

Nánari upplýsingar : http://en.wikipedia.org/wiki/Alain_Robbe-Grillet


febrúar 2008

Hvers vegna hlær fólk á leikriti sem heitir Vígaguðinn?

Föstudaginn 22. febrúar kl. 18:00 mun Melkorka Tekla Ólafsdóttir halda kynningu á franska leikskáldinu Yasminu Reza í húsnæði Alliance française við Tryggvagötu 8. Yfirskrift kynningarinnar er „Hvers vegna hlær fólk á leikriti sem heitir Vígaguðinn?“ og er tilefni hennar sýning Þjóðleikhússins á nýjasta leikverki Reza, Vígaguðinum, sem frumsýnt var á Smíðaverkstæðinu 25. janúar.
Yasmina Reza er eitt allravinsælasta leikskáld samtímans. Verk hennar hafa á undanförnum árum verið leikin út um allan heim, en frægasta leikrit hennar er Listaverkið, «Art», frá 1994 sem sló í gegn á Íslandi í uppsetningu Þjóðleikhússins árið 1997. Yasmina Reza hefur fengið Laurence Olivier-verðlaunin í Bretlandi, Tony-verðlaunin í Bandaríkjunum og oftar en einu sinni Molière-verðlaunin í Frakklandi.
Vígaguðinn er bráðfyndið, æsispennandi og ágengt verk þar sem enginn er óhultur. Þar er á óvæntan og ferskan hátt fjallað um mörkin á milli þess siðmenntaða og villimannslega í manninum. Tvenn hjón sem þekkjast ekki, foreldrar tveggja ellefu ára drengja ákveða að hittast eftir að annar drengurinn hefur slasað hinn með því að slá hann með priki þegar þeir voru úti að leika sér. En þetta siðmenntaða fólk er ekki allt þar sem það er séð, frekar en aðrar manneskjur. Undir fáguðu yfirborði ólga hinar frumstæðu og dýrslegu hvatir. Árásargirni manneskjunnar virðast engin takmörk sett.
Á kynningunni mun Melkorka Tekla Ólafsdóttir, leikstjóri sýningarinnar í Þjóðleikhúsinu, sem jafnframt er menntuð í leikhúsfræði frá Université de la Sorbonne Nouvelle í París, fjalla um Yasminu Reza og leikverk hennar.
Athygli er vakin á því að meðlimum í Alliance française bjóðast kostakjör á sýningu Þjóðleikhússins á Vígaguðinum í febrúar og mars, leikhúsmiðinn á 2.500 kr.


Sigurður Pálsson fjallar um verðlaunabókina Minnisbók

Þriðjudaginn 12. febrúar kl. 20:30 fjallar Sigurður Pálsson rithöfundur um bók sína, Minnisbók, í Alliance francaise, en fyrir hana hlaut hann nýverið Íslensku bókmenntaverðlaunin 2007 í flokki fagurbókmennta.

Í bókinni rekur hann minningar sínar frá Frakklandi á árunum 1967 –1982. Hann kemur til Parísar á miklum óróa- og uppreisnartímum, nítján ára nýstúdent og prestssonur að norðan, og hefur nám í frönsku og síðar leikhúsfræðum og bókmenntum við Sorbonne-háskóla. Heim fer hann fullmótað skáld að námi loknu.
Kynningin fer fram á íslensku í formi samtals milli Sigurðar og Kristjáns Þórðar Hrafnssonar rithöfundar.

Hægt verður að kaupa bókina á staðnum og mun höfundurinn árita hana fyrir þá sem þess óska. Aðgangur er ókeypis og öllum opinn. Nánari upplýsingar eru veittar í Alliance française, Tryggvagötu 8, s. 5523870.



Sýningahópurinn Oki Haiku

Dagana 6. til 9. febrúar býður Alliance française landsmönnum upp á japansk- franskan nýsirkus, en þá kemur sýningahópurinn Oki Haiku Dan hingað til lands með gullfallega og stórglæsilega sýningu sem ber yfirskriftina “Beinagrindin”.
Beinagrindin verður sýnd tvisvar á Nýja sviði Borgarleikhússins, kl. 20:00 dagana 6. og 8. febrúar. Auk þess tekur nýsirkusinn þátt í opnunaratriði Vetrarhátíðar fimmtudagskvöldið 7. febrúar og verður með sirkussmiðju fyrir börn og unglinga á Heimsdeginum, laugardaginn 9. febrúar frá kl. 13:00 -16:00.
Þetta er heillandi sýning fyrir alla aldurshópa, í senn sirkus, tónlist, dans- og ljósasýning. Japanski listamaðurinn Keisuke Kanaí leikur þar á einstaklega frumlegan og skemmtilegan hátt með samspil ljóss og skugga. Tónlistarmaðurinn Rui Owada leikur lifandi tónlist á sýningunni. Leikstjóri er Sébastien Lalanne.
Sýningarhópurinn Oki Haiku hefur áður komið hingað til lands, komu og sýndu verkið “Hreyfa ekki hreyfa” í Borgarleikhúsinu 2004, en sú sýning var sýnd hundrað og sextíu sinnum víðsvegar um heiminn.

Miðinn kostar 3100kr en 60 sæti eru laus á 1550 kr fyrir félaga Alliance Française. Þá miða er aðeins hægt að kaupa hjá Alliance Française alla daga milli kl 4 og 7.

Nánari upplýsingar er að finna hjá Borgarleikhúsinu (í síma 5688000), á vef Vetrarhatíðar, og á vef Alliance française.
Alliance Française kynnir Oki Haiku Dan flokkinn í samvinnu við Sendiráð Frakklands á Íslandi, Culturesfrance, Vetrarhátið, Peugeot/Bernhard og Grand Hotel.



LA DICTEE DES AMERIQUES !
Frá Félagi frönskukennara á Islandi

Télé-Québec heldur fræga stafsetningarkepnni í Québec á hverju ári. Hún kallast "La dictée des Amériques" og er sýnd á Télé-Québec og TV5 Monde.
Í þetta sinn býdst Íslendingum að taka þátt í lokakeppninni sem verður 15. mars n.k. Einn íslenskur þáttakandi mun fara til Québec og taka þátt fyrir okkar hönd.
Télé-Québec sér um ferðalagið, fæði og uppihald. Undankeppni verður haldin í Alliance française, Tryggvagötu 8, Reykjavík, laugardaginn 9. febrúar 2008, kl. 13:00.
Keppnin er ætluð þeim sem eru góðir í frönsku, eru orðnir 19 ára (31 mars 2008) og eru íslenskir ríkisborgarar.
Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í keppninni, vinsamlegast skrifi til: siggan@mh.is



janúar 2008

Nýtt: Hópnámskeið með stuðningskennslu og nýju kennsluforriti

Námskeiðið byggir á nýju kennsluforriti og er haldið í formi leikja, með kaflaskiptri framhaldssögu á videói með fjórum aðalpersónum. Það er fjölbreytilegt, byggist á því að nemandinn lærir frönskuna eins og hann/hún væri í París og rökrétt, þannig að nemandinn finnur stöðugt hvernig honum/henni fer fram.

Frönsk kvikmyndahátíð:
Græna ljósið, Alliance Francaise og franska sendiráðið á Íslandi efna til franskrar kvikmyndahátíðar Í Háskólabíói dagana 11. - 24. janúar n.k. Sýndar verða 11 sérvaldar, fjölbreyttar, splunkunýjar gæðamyndir, brot af því besta sem sýnt hefur verið í Frakklandi undanfarin misseri.
Opnunarmyndin á hátiðinni er Persepolis, teiknimynd fyrir alla aldurshópa, byggð á samnefndum sjálfsævisögum hinnar írönsku Marjane Satrapi, sem hafa náð metsölu um allan heim og unnið til fjölda verðlauna. Meðal annarra athyglisverðra mynda má nefna nýjusta mynd Íslandsvinarins Emir Kusturica, Lofaðu mér, en hún var frumsýnd í nóvember s.l., Serko, magnaða heimildamynd um merkasta afrek allra tíma í reiðmennsku og Molière, stórbrotna og bráðskemmtilega mynd um gamanleikskáldið fræga, Molière.
Peugeot er aðalstyrktaraðili frönsku kvikmyndahátíðarinnar.
Nánari upplýsingar er að finna á graenaljosid.is og af.is


LAURENT KORCIA & CHRISTIAN IHLE HADLAND
Miðvikudagskvöldið 16. janúar 2008 kl. 20 heldur hinn heimskunni franski fiðluleikari LAURENT KORCIA einleikstónleika í TÍBRÁ, tónleikaröð Salarins (Hamraborg 6, Kópavogi), ásamt ungum, margverðlaunuðum norskum píanóleikara CHRISTIAN IHLE HADLAND. Á efniskránni eru virúósísk fiðlustykki eftir helstu tónskáld sögunnar, Schumann, Dvorák, Brahms, Béla Bartók, Claude Debussy og Maurice Ravel, en einnig leikur Hadland einleiksverk eftir landa sinn, Grieg.
Tónleikarnir eru í samstarfi við Alliance française.
Miðaverð 2000 kr.
67 ára og eldri, námsmenn öryrkjar, félagar og nemandur í Alliance Française 1600 kr.
NETSALA www.salurinn.is – opið allan sólarhringinn
ATHUGIÐ! Ekki er hægt að kaupa afsláttarmiða á netinu.
Miðasala Salarins er opin mán – föst kl. 10.00 - 16.00 og klst. fyrir tónleika, sími 5 700 400.

nóvember 2007

JÓLAHLAÐBORÐ
Þann 24. november kl. 19:30 verður efnt til glæsilegs jólakvöldverðar í húsnæði Alliance française: Matreiðslumeistarinn François Fons býður upp á sérstakan matseðil til þess að hefja jólahaldið. Sökum takmarkaðs sætafjölda er mikilvægt að panta miða tímanlega. Matseðillinn er hér fyrir neðan. Verð: kr. 4.800 (1/2 flaska af rauðvíni innifalin) - greitt er við pöntun (fyrir 20. nóv.)
Boð á kvikmyndina "La vie en rose"
Kvikmyndin "La vie en rose" verður sýnd í Regnboganum fimmtudaginn 15. nóvember n.k. kl. 19:00
Franska sendiráðið og Græna ljósið bjóða meðlimum l´Alliance française 50 boðsmiða á íslenska frumsýningu kvikmyndarinnar "La vie en rose" sem fjallar um ævi söngkonunnar Edith Piaf. Á undan myndinni verður boðið upp á léttar veitingar og söngkonan Jóhanna Vigdís syngur lög við undirleik Kjartans Valdemarssonar.

Toutes les invitations ont été distribuées.

Námskeið -- Undraveröld franskra ilmvatna
Alliance française og Forval standa nú í nóvember fyrir ilmvatnsnámskeiði sem ber yfirskriftina "Undraveröld franskra ilmvatna". Frönsk ilmvötn eru rómuð um allan heim og hafa verið lengi. Sagan að baki þeim er bæði löng og merkileg, og heimur ilmvatnsins ekki síður heillandi en heimur vínsmökkunar og matargerðar.
Námskeiðið er tvískipt. Á fyrri hluta þess verða þátttakendur leiddir inn í þennan heim, fræddir um sögu þekktustu frönsku ilmvatnanna og fjallað um flöskurnar sem þau eru seld í, sem sumar hverjar eru hrein listaverk.
Í síðari hlutanum verða þátttakendur leiddir nánar inn í þá ilmveröld sem býr að baki völdum ilmvötum og sagt frá helstu hugtökum sem notuð eru í greininni.
Kennari er Guðrún Edda Haraldsdóttir, sérfræðingur hjá Forvali.
Námskeiðið verður haldið fimmtudagskvöldin 22. og 29. nóvember frá kl. 19:00-21:00 í húsakynnum Alliance francaise, Tryggvagötu 8.
Verð: 5900 kr.

Fjöldi þátttakenda er takmarkaður, en skráningarfrestur er til og með 21. nóvember. Skráning fer fram í síma 552 3870 frá kl. 16:00 til 19:00 alla daga, eða í alliance@af.is

október 2007

Alliance française býður upp á sýningu á hápunktum úr sögu fransk sjónvarpsins, laugardaginn, 27. október kl. 20:00


Alþjóðlegi minjadagurinn

Á þessu ári verður viðburðurinn haldinn 27. október 2007 sem hluti af alþjóðadegi hljóð- og sjónminja, en dagurinn var stofnaður af UNESCO til að vekja almenning í heiminum til vitundar um vandamálið varðandi vörslu hljóð- og sjónminja, raunverulegra minninga frá okkar tímum.
“Les 24 heures de la télé” (24 klst. sjónvarpsins), er tækifæri til að grannskoða safn franska sjónvarpsins og njóta ógleymanlegra stundir með því að horfa á samantekt sem er 1 klst og 20 mín. að lengd. Í henni er blandað saman hrífandi, fyndnum eða undraverðum senum úr heimi íþrótta, stjórnmála, tónlistar, þjóðfélags, er koma frá “L´institut national de l´audiovisuel” (Þjóðarstofnun varðandi útvarp og sjónvarp).
Meðal áhugaverðs efnis má nefna tónleika Rostropovitch við Berlínarmúrinn, fyrsta viðtalið við Jacques Chirac, Jacques Brel syngjandi Amsterdam, erfiðleika Johnny Hallyday í París-Dakar rallýinu, viðtal við John F. Kennedy fyrir forsetakosningarnar og hina magnþrungnu spennu í vítaspyrnunum í leiknum milli Frakklands og Brasilíu í heimsmeistarkeppninni árið 1986....

Aðgangur á þessari sýningunni er ókeypis, sætafjöldi er takmarkaður. Þess vegna biðjum við þau ykkar sem vilja panta sæti að hringja í okkur í s. 552 3870 (á milli kl. 16:00 og 19:00) eða senda okkur tölvupóst (alliance@af.is)
 


september 2007

Dr. Charcot í Reykjavík

Alliance francaise efnir til fyrirlestrar um einn mesta Íslandsvin allra tíma fimmtudaginn 20. september kl. 20:00 í húsakynnum félagsins að Tryggvagötu 8. Þá fjallar Friðrik Rafnsson um ferðir franska leiðangursstjórans Jean-Baptiste Charcot til Reykjavíkur á fyrri hluta síðustu aldar. Franski heimskautafarinn, leiðangursstjórinn og læknirinn Jean-Baptiste Charcot (1867– 1936) var einn þeirra merkismanna sem fyrstir könnuðu og kortlögðu haf- og landsvæðin umhverfis heimsskautin í byrjun síðustu aldar. Í byrjun þeirrar aldar stóð Charcot fyrir og stjórnaði tveimur leiðöngrum til að kanna suðurskautið, og hafði þar fyrstur Frakka vetursetu ásamt áhöfn sinni. Eftir fyrri heimsstyrjöldina stjórnaði hann síðan fjölmörgum þverfaglegum vísindaleiðöngrum á norðurslóðir, til Færeyja, Íslands, Jan Mayen og Grænlands.
Þekktasta skip hans var Pourquoi-Pas? – sérútbúið rannsóknaskip með þremur rannsóknastofum og bókasafni. Í ferðum þess voru gerðar margvíslegar vísindarannsóknir sem þykja stórmerkar enn þann dag í dag.
Þann 16. september 1936 lenti skip hans, Pourquoi pas?, í miklu og óvæntu óveðri út af Reykjanesi, hraktist upp í Borgarfjörð og fórst á Hnokka út af Álfanesi á Mýrum. Alls létust 40 manns, 23 fundust látnir, 17 var saknað og fundust aldrei og einn áhafnarmeðlimur komst lífs af.
Charcot og menn hans komu oft við hér á landi í leiðöngrum sínum á norðurslóðir. Hann eignaðist fjölmarga vini hér á landi og hélt góðu sambandi við þá allt þar til yfir lauk. Meðal annars varð hann góður vinur frú Þóru Friðriksson sem um árabil var forseti Alliance francaise og hann hélt oft fyrirlestra í félaginu þegar hann var staddur hér á landi. Strand Pourquoi pas? var því mikil sorgarfrétt á Íslandi á sínum tíma og til marks um það má nefna að þegar minningarsamkoma um hina látnu var haldin var öllum verslunum í Reykjavík lokað, og mun það vera einsdæmi að erlendum manni sé sýndur viðlíka sómi. Friðrik Rafnsson, þýðandi og forseti Alliance francaise, mun í erindi sínu rekja þessa sögu í stórum dráttum og sýna myndir úr ferðum hans sem ekki hafa áður verið sýndar hérlendis.
Aðgangur er ókeypis og öllum opinn, en fyrirlesturinn verður fluttur á frönsku og íslensku.
 


 


Skalasafn::
sept 2008 - maí 2009 | sept 2007 - maí 2008 | sept 2006 - maí 2007 | sept 2005 - maí 2006 | sept 2004 - maí 2005 | sept 2003 - maí 2004 | sept 2002 - maí 2003 | sept 2001 - maí 2002 | jan - maí 2000 | okt - des 1999